1
Innlent

„Aumingi sendir frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla“

2
Innlent

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

3
Fólk

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar

4
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

5
Fólk

„Vottar Jehóva reyndu að drepa mig”

6
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

7
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

8
Pólitík

Þórdís Kolbrún gerð að sendiherra

9
Heimur

Þrír látnir eftir bruna á Tenerife

10
Innlent

Albanskur aðkomumaður ákærður á Akureyri

Til baka

Stjórnvöld segja Morgunblaðið stuðla að upplýsingaóreiðu

„Villandi upplýsingagjöf“

Morgunblaðið
Morgunblaðshúsið í ÁrbænumEr einn stærsti fjölmiðill landsins.
Mynd: Víkingur

Stjórnvöld hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna misvísandi upplýsinga í fjölmiðlaumræðu um vímuefnaneyslu ungmenna. Vilja yfirvöld benda á útgáfu Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrr í vikunni.

Samkvæmt stjórnvöldum er hún ítarlegasta rannsókn sem framkvæmd er hérlendis á vímuefnaneyslu ungmenna, auk þess að rannsaka fjölda annarra þátta.

„Í vikunni komu fram fréttir um að unglingadrykkja hafi aukist að nýju en samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar hefur vímuefnaneysla ungmenna ekki aukist í ár eða síðustu ár. Hún hefur frekar verið að dragast saman og ef horft er lengra aftur í tímann hefur vímuefnaneysla ungmenna dregist verulega saman,“ segir í yfirlýsingu stjórnvalda um málið.

„Mennta- og barnamálaráðherra vakti athygli á því á Alþingi að staðhæfing um aukna neyslu ungmenna væri ekki rétt og birti Morgunblaðið frétt um það. Hins vegar, í stað þess að koma leiðréttingunni á framfæri þá stillir miðillinn fram annarri tölfræði og gefur þannig til kynna að ráðherra segi ósatt með fullyrðingu sinni: „Þessi fullyrðing gengur aftur á móti í berhögg við það sem kemur fram í skýrslu Barna- og fjölskyldustofu um samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónustu á árunum 2022-2024,“ segir í frétt Morgunblaðsins. Tölfræðin sem þarna er vitnað í er ekki tölfræði um almenna vímuefnaneyslu ungmenna og ekki er minnst einu orði á heimild ráðherra, sem eru upplýsingar úr nýrri rannsókn, þeirri umfangsmestu og áreiðanlegustu á þessu sviði,“ og segja yfirvöld að það sé mikilvægt er að rangfærslur um svo stórt samfélagsmál séu leiðréttar til varnar upplýsingaóreiðu.

Ekki réttur mælikvarði

Yfirvöld segja að fjöldi tilkynninga til barnaverndar sé ekki mælikvarði fyrir almenna vímuefnaneyslu ungmenna heldur tölfræði yfir fjölda alvarlegustu málanna sem upp koma vegna fíknivanda ungmenna og ber að tilkynna.

„Ekki er vitað hvort sú aukning komi til vegna vitundarvakningar um tilkynningaskyldu eða vegna aukningar á fjölda mála en þróunina ber að taka alvarlega og bregðast við henni. Það er hins vegar ekki mælikvarði á almennri neyslu ungmenna á vímuefnum og ekki það sem var til umræðu. Það að almenn vímuefnaneysla barna hafi dregist saman á undanförnum árum og áratugum ber að fagna frekar en mála af bölsýni. Margir fjölbreyttir aðilar eiga hrós skilið fyrir sitt forvarnarstarf og ekki má gefa eftir í þeirri baráttu,“ og þá er tekið sérstaklega fram í lokin að Morgunblaðið hafi ekki leiðrétt rangfærslur sínar þrátt fyrir ábendingar um annað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu