
Skimun fyrir ofbeldi gegn börnum hefst í grunnskólum landsins í október næstkomandi. Alma Möller heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein og leggur áherslu á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar.
Aðgerðin er hluti af 25 liða pakka stjórnvalda til að bregðast við ofbeldi gegn börnum og meðal barna, sem kynntur var á vordögum 2025. Skimunin verður í höndum skólahjúkrunarfræðinga og mun hún fyrst um sinn ná til nemenda í 7. og 9. bekk, en til stendur að útvíkka verkefnið í fleiri bekki síðar.
„Við erum að nota verkfæri sem er til, samtal heilbrigðisstarfsmanns við börnin í umhverfi sem þau þekkja, í umhverfi þar sem þeim finnst þau vera örugg,“ segir Alma Möller í viðtali viðRÚV.
Sláandi niðurstöður úr prufuverkefni
Verkefnið var prófað í fimm grunnskólum á síðasta vori og voru niðurstöðurnar afgerandi. Alls greindu 14% þeirra barna sem tóku þátt frá því að hafa orðið fyrir ofbeldi, og 4% sögðu ofbeldið hafa átt sér stað nýverið.
Heilbrigðisráðherra segir lykilatriði að vel skilgreint ferli taki við þegar börn greina frá ofbeldi. Með snemmtækri íhlutun, úrvinnslu og viðeigandi meðferð innan heilbrigðiskerfisins sé hægt að koma í veg fyrir langvinn áhrif áfalla.
Nýtt þekkingarsetur í Bryndísarhlíð á döfinni
Öflugt bakland hefur verið byggt upp á síðustu misserum. Þverfaglegt ofbeldis- og áfallateymi barna tók til starfa á Landspítalanum síðasta vetur og ný ofbeldismóttaka barna var opnuð á Barnaspítalanum í ágúst sl.
Framundan er frekari uppbygging, því til stendur að flytja ofbeldismóttökuna í Bryndísarhlíð jafnskótt og húsnæðið þar er tilbúið. Þar mun rísa nýtt þjónustu- og þekkingarsetur á sviði ofbeldis og áfalla, sem á að grípa bæði börn og fullorðna þolendur.
