Samblástur Ingu Sæland og Guðbjargar Ingunnar Magnúsdóttur, aðstoðarkonu Guðmundar Inga Kristinssonar, hefur vakið athygli og jafnvel óhug. Smáskilaboð leiða í ljós að Guðbjörg hafði í hótunum við yfirmann sinn um að ef hann segði ekki af sér á sjúkrabeði biði hans stríð. Það skuggalega við málið er að Guðbjörg er þarna að plotta með eða í þágu eiginmanns síns, Ragnars Þórs Ingólfssonar, sem beið þess á hliðarlínunni að fá ráðherrastól þegar búið væri að koma hjartasjúklingnum úr embætti. Flestir þekkja þá grundvallarreglu að reka ekki fólk úr vinnu á sjúkrabeði.
Það vekur ekki síst athygli að hjónin eru horfin af yfirborði jarðar og svara ekki fjölmiðlum. Strigakjafturinn Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, kallar Ragnar raggeit á samfélagsmiðlum. Ragnar Þór situr í súpunni vegna þessa máls og einnig vegna þátttöku sinnar í að boða lög á verkfall flugvirkja. Verkalýðsformaðurinn fyrrverandi getur varla leyft sér slíka aðför að launþegum og rétti þeirra án þess að enda sem umskiptingur ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir