
Lögreglan er alltaf á vaktinni og býður stundum upp á ókeypis gistinguSem betur fer segja flestir
Mynd: Víkingur
Aðstoð lögreglu á veitingastað var óskað vegna ferðamanns er þverneitaði að greiða reikning sinn að aflokinni máltíð.

Er lögreglu bar að garði þá neitaði viðkomandi að framvísa persónuskilríkjum og hótaði að kýla og drepa lögreglumann og streittist mikið á móti. En að dugði ekki og var ferðamaðurinn handtekinn í þágu rannsóknar málsins; hann er grunaður um fjársvik og brot á lögum um útlendinga sem og brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg og að endingu, ofbeldi gagnvart lögreglumanni.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Allt í allt voru 70 mál skráð og fimm aðilar fengu ókeypis gistingu í fangaklefa.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment