
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og í gærkvöldi.
Í miðbænum var tilkynnt um þjófnað úr verslun sem var afgreiddur á vettvangi. Þá var maður handtekinn í sama hverfi, grunaður um fíkniefnamisferli, og vistaður í fangageymslu.
Í Laugardalnum var ökumaður stöðvaður við akstur og reyndist hann ekki hafa gild ökuréttindi. Málið var afgreitt með sekt. Einnig var tilkynnt um minniháttar líkamsárás í hverfinu sem leyst var á vettvangi.
Alvarlegri mál komu upp í hverfum 105 og 108, þar sem menn í annarlegu ástandi voru handteknir vegna líkamsárása og hótana. Þeir voru vistaðir í fangageymslu sökum ástands. Þá voru sjö menn handteknir í hverfi 105 vegna meiriháttar líkamsárásar og vistaðir í fangageymslu á meðan rannsókn málsins stendur yfir.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í flestum tilvikum voru þeir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Í hverfi 221 kom þó upp umferðarslys þar sem ökumaður stakk af af vettvangi, en fannst síðar og var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Í Hafnarfirði var einnig tilkynnt um slys þar sem maður féll og hlaut höfuðáverka. Hann var fluttur á bráðamóttöku til frekari skoðunar.
Þá var tilkynnt um minniháttar líkamsárás í Kópavogi, þar sem gerandi var farinn af vettvangi en vitað er hver hann er. Í Kópavogi varð umferðarslys án þess að slys yrði á fólki, en bifreið var skilin eftir óökufær og ökumaður farinn af vettvangi.

Komment