1
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

2
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

3
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

4
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

5
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

6
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

7
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

8
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

9
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

10
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Til baka

Fór í viðtal hjá áróðursmiðli Pútín

ESB stöðvaði útsendingar og dreifingu á fjölmiðlinum í aðildarríkjum sínum árið 2022

Hannes Hólmsteinn G
Hannes Hólmsteinn GissurarsonEkki stuðningsmaður ESB
Mynd: Skjáskot

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hefur verið áberandi í umræðunni um Evrópusambandið undanfarnar vikur og talað eindregið gegn áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands við sambandið.

Hannes hefur meðal annars skrifað fjölda greina um málið og birt og deilt efni á samfélagsmiðlum þar sem hann færir rök fyrir afstöðu sinni.

Hann kom jafnframt að því að fá Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, hingað til lands til að halda fyrirlestur um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu. Heimsókn Baudenbachers vakti töluverða athygli og varð að áberandi máli í fjölmiðlum.

Hannes ræddi afstöðu sína til Evrópusambandsins í viðtali við rússneska ríkismiðilinn RT, þar sem hann var spurður út í afstöðu Íslendinga til sambandsins, en viðtalið birtist í gær.

Í viðtalinu hélt Hannes því fram að Ísland hefði ekkert að vinna með inngöngu í Evrópusambandið. Að hans mati myndi aðild meðal annars fela í sér að Íslendingar þyrftu að láta af hendi aukin yfirráð yfir eigin auðlindum.

Hann gagnrýndi jafnframt hvernig Evrópusambandið hefði staðið að stjórnun náttúruauðlinda og sagði sambandið ekki hafa staðið sig sérstaklega vel á því sviði.

Athygli vekur að Hannes hafi kosið að veita RT viðtal, en miðillinn er undir stjórn rússneskra stjórnvalda og hefur um árabil verið sakaður um að gegna lykilhlutverki í áróðurs- og upplýsingastarfsemi stjórnvalda Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Evrópusambandið stöðvaði útsendingar og dreifingu RT í aðildarríkjum sínum árið 2022 vegna þess sem sambandið lýsti sem kerfisbundinni upplýsingamisnotkun og dreifingu rangra upplýsinga.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla
Heimur

Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla

Mætti árásarmanninum vopnaður byssu
Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors
Heimur

Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

„Það besta sem ég hef upplifað“
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Loka auglýsingu