Fallegt og vel skipulagt endaraðhús við Aflagranda 28 í Vesturbæ Reykjavíkur er komið á sölu.
Um er að ræða rúmgóða eign sem er skráð 192,3 fermetrar að stærð og var byggð árið 1993. Ásett verð er 185 milljónir króna.
Eigendur eignarinnar eru sjónvarpsmaðurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Guðmundur Benediktsson og eiginkona hans Kristbjörg Ingadóttir, sem einnig er fyrrverandi knattspyrnukona.
Húsið er á tveimur hæðum auk herbergis í risi og hefur verið lýst sem björtu og sérstaklega vel skipulögðu fjölskylduhúsi. Samkvæmt fasteignaauglýsingu er rýmið nýtt vel og hönnun hússins miðuð að þægilegu fjölskyldulífi.
Við húsið er fallegur suðurgarður með timburveröndum sem veita gott skjól. Í garðinum er einnig heitur pottur sem gerir útisvæðið sérstaklega hentugt til afslöppunar og samveru.
Eignir á þessum slóðum í Vesturbænum hafa verið eftirsóttar undanfarin ár, ekki síst vegna nálægðar við skóla, þjónustu og útivistarsvæði.


Komment