1
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

2
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

3
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

4
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

5
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

6
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

7
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

8
Innlent

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm

9
Pólitík

Segir afsögn Joe Kent sýna klofning innan MAGA

10
Peningar

Matvöruverð heldur áfram að hækka

Til baka

Heiðrún missti nær alla sjón á öðru auga

„Ég var búin að vera undir miklu álagi“

Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu
Heiðrún JónsdóttirEr framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
Mynd: Golli

Heiðrún Emilía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, kom fram um helgina í viðtalaröð Mannlífs við stjórnendur.

Hún er lögmaður með fjölbreytta reynslu og hefur verið framkvæmdastjóri hjá KEA, Símanum og Eimskip á miklum umrótatímum. Heiðrún leggur áherslu á að vera hreinskiptin í samskiptum og að treysta samstarfsmönnum í þeim verkefnum sem þeir bera ábyrgð.

Heiðrún ræddi eitt og annað í viðtalinu og meðal þess sem hún ræddi var torkennilegur heilsubrestur gerði síðan vart við sig árið 2023.

„Haustið 2023 var ég í vinnuferð í Stokkhólmi. Ég fór að fá sjóntruflanir á öðru auga, svipað eins og mígreni. Í skoðun á Íslandi kom í ljós að ég var með bólgna sjóntaug í hægra auga. Það hefur aldrei komið í ljós hvað þetta er en ég missti nær alla sjón á auganu. Ég var búin að vera undir miklu álagi en þegar þarna var komið sögu var allt að komast í eðlilegt horf. Ég ætla ekki að útiloka að undir miklu og langvarandi álagi geti eitthvað í líkamanum gefið eftir. Sjónina hef ég ekki fengið til baka. Ég var sjúklega hrædd á þessum tíma um að sama myndi koma fyrir hitt augað,“ sagði Heiðrún.

Heiðrún var í rannsóknum í um sex mánuði og var fyrst greind með MS en síðar kom í ljós að svo var ekki. Hún segist hafa fengið afar góða þjónustu, var send í alls konar rannsóknir til að útiloka mögulega sjúkdóma. Það fannst ekkert sem skýrt gat hvers vegna sjóntaugin bólgnaði. „Ég fékk greininguna NAION, það er óútskýrt hvers vegna bólga kom í sjóntaug sem leiddi til skemmda. Niðurstöður rannsóknanna voru sendar til Karolinska í Svíþjóð þar sem sænskir sérfræðingar í augnsjúkdómum fóru yfir allar rannsóknir og komust að sömu niðurstöðu.

Auðvitað var áfall að missa sjónina. Ég fann fyrir heilsukvíða í fyrsta sinn og var hrædd um að þetta færi í hitt augað. Fjarlægðaskynið minnkaði og ég var klaufi í fyrstu. Kaffibollinn var fyrir framan mig en ég sá hann ekki og hellti niður. Þá var ég að reka mig í fólk eða hluti. Og ekki batnaði golfið við þetta.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla
Innlent

Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

Dæmdur fyrir að ráðast á kærustu sína í tvígang
Innlent

Dæmdur fyrir að ráðast á kærustu sína í tvígang

Ungir Sjálfstæðismenn auglýsa eftir sleggju Samfylkingarinnar
Pólitík

Ungir Sjálfstæðismenn auglýsa eftir sleggju Samfylkingarinnar

Blaðamaður braut ekki af sér
Innlent

Blaðamaður braut ekki af sér

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð
Myndband
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

Grikkinn ákærður fyrir manndráp í Kópavogi
Innlent

Grikkinn ákærður fyrir manndráp í Kópavogi

Matvöruverð heldur áfram að hækka
Peningar

Matvöruverð heldur áfram að hækka

Heilahimnubólgufaraldurinn í Kent orðinn „þjóðaratburður“
Myndband
Heimur

Heilahimnubólgufaraldurinn í Kent orðinn „þjóðaratburður“

Blaðamaður Morgunblaðsins hafnar ásökunum Dags
Innlent

Blaðamaður Morgunblaðsins hafnar ásökunum Dags

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

Innlent

Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla
Innlent

Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm
Innlent

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm

Dæmdur fyrir að ráðast á kærustu sína í tvígang
Innlent

Dæmdur fyrir að ráðast á kærustu sína í tvígang

Blaðamaður braut ekki af sér
Innlent

Blaðamaður braut ekki af sér

Grikkinn ákærður fyrir manndráp í Kópavogi
Innlent

Grikkinn ákærður fyrir manndráp í Kópavogi

Blaðamaður Morgunblaðsins hafnar ásökunum Dags
Innlent

Blaðamaður Morgunblaðsins hafnar ásökunum Dags

Loka auglýsingu