
Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður hjá Samstöðinni, rýnir í stöðu og verk Samfylkingarinnar í Reykjavík í kjölfar þess að Pétur Marteinsson sigraði í prófkjöri flokksins í gær og tryggði sér fyrsta sæti á lista hans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Heiða Björg Hilmarsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, sóttist einnig eftir oddvitasætinu en laut í lægra haldi.
Í færslu á Facebook segir Björn úrslitin lýsandi fyrir djúpa þreytu kjósenda gagnvart Samfylkingunni og starfi hennar í borgarstjórn. Hann talar um „sprunguþreytu íbúa gagnvart verkum Samfylkingarinnar í borgarstjórn um langa hríð og ráðaleysi“ og segir athyglisvert að „utanaðkomandi maður geti á einu korteri lagt undir sig flokkinn með vinum sínum – með stuðningi formannsins“.
Björn telur að niðurstaðan sendi Heiðu Björgu skýr skilaboð og gengur svo langt að segja að best væri fyrir hana að víkja.
„Hreinlegast væri nú fyrir Heiðu að draga sig í hlé. Hún hefur fengið skýr skilaboð og féll aukinheldur á skyndiprófum í baráttunni.“
Hann gagnrýnir jafnframt þá nálgun sem hann segir hafa einkennt forystu flokksins í borginni:
„Hugmyndin að styggja aldrei neinn er glötuð stefna. Við viljum fólk sem þorir. Fólk sem tekur skýrar og skarpar ákvarðanir. Fólk sem þorir að standa við eigin orð og tekur slaginn óhrætt.“
Þrátt fyrir gagnrýnina leggur Björn áherslu á að um persónulegan ágreining sé ekki að ræða. Hann segir Heiðu Björgu „mjög væna manneskju“ sem hann kunni vel við, en telur hana „bara ekki á réttum stað þarna og fullreynt með klanið í kring. Að mestu leyti.“
Varðandi horfur Samfylkingarinnar í komandi kosningum segist Björn óviss um sigurlíkur listans. Hann telur að nýtt fólk eitt og sér dugi ekki:
„Froða nýja fólksins mun ekki duga ein og sér þótt þeir sem kusu í prófkjörinu hafi þegið froðuna fremur en fortíðina.“
Hann segist sakna meiri fjölbreytileika innan flokksins og fólks með reynslu:
„Ég sakna meiri fjölbreytileika, sakna fólks með sigg á höndunum eins og ég nefndi fyrr í dag.“
Að lokum óskar Björn Pétri Marteinssyni til hamingju með sigurinn og segir hann viðkunnanlegan:
„Ég tók viðtal við hann og Heiðu í sjónvarpi um daginn og þetta er viðkunnanlegur náungi sem kann að smala fé. Það er þó eitthvað…“

Komment