
Þann 30. júní síðastliðinn lést Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrum þingmaður, í sjóslysi en hann hafði í för með sér hundinn sinn sem hefur ekki komið í leitirnar. Þeirra er minnst í færslu í Facebook hópnum Hundasamfélagið.
Jósa Þorbjarnardóttir birti færsluna og segir frá vináttu sinni og hundanna hennar við Magnús Þór og Odd, svarta púðluhundinn hans. „Margir muna eftir þeim af Geirsnefinu og elskuðu hundarnir mínir Magnús hann átti alltaf eitthvað gott í bílnum harðfisk eða nammi og varð ég alltaf hundlaus þegar mín sáu hann og þá kom Oddur til mín í knús og klapp,“ skrifar Jósa í færslunni.

Oddur var á bátnum með Magnúsi í flotvesti en hefur ekki komið í leitirnar eftir slysið. Þröstur Reynisson deildi í athugasemd greinargerð á leitinni að hundinum. „Oddur hundur hefur enn ekki fundist, þrátt fyrir talsverða eftirgrennslan. Hann var nokkuð örugglega í flotvesti og hefði átt að berast að landi. Auk annars er búið að ganga fjörur og fljúga með dróna þar sem kör o.fl. rak á land,“ skrifar Þröstur.
90 manns hafa skrifað samúðarkveðjur við færsluna og margir notendur minnast Magnúsar og áhrifanna sem hann hafði á nærsamfélagið sitt.
Komment