
Ágústa Elín Ingþórsdóttir sækist eftir að verða skipuð sem skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ en hún komst í fréttirnar árið 2019 þegar hún var skólameistari Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi.
Ágústa þótti umdeild í starfi en mikill meirihluti kennara og starfsmanna skrifaði undir vantraustsyfirlýsingu sem beindist að henni. Var þáverandi menntamálaráðherra hvatur til að endurnýja ekki skipunartíma hennar. Var henni tilkynnt munnlega og bréfleiðis að staða hennar yrði auglýst og fór Ágústa í mál við ríkið þar sem hún taldi að ríkið hafa brotið lög um hvernig henni var tilkynnt um ákvörðunina. Ágústa tapaði málinu og starfinu.
Umsækjendur um embætti skólameistara FVA
- Anne Héléna Clara Herzog
- Ágústa Elín Ingþórsdóttir
- Guðjón Ragnar Jónasson
- Íris Anna Steinarsdóttir
- Kristján Arnar Ingason
- Muniya Samy
- Vera Sólveig Ólafsdóttir
Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 24. júní síðastliðinn, með framlengdum umsóknarfresti til og með 6. ágúst. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Komment