
Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðlamaður segir að þrátt fyrir aukið fylgi öfgahægrihreyfinga í Evrópu sé þróunin ekki óafturkræf. Þetta kemur fram í Facebook-færslu hans þar sem hann fjallar meðal annars um stöðu Þjóðfylkingar Marine Le Pen í Frakklandi.
Illugi bendir á að þótt flokkurinn hafi náð árangri í kosningum hafi víða tekist að stöðva frekari framgang hans:
„Fasisminn er ekki ósigrandi. Þótt Þjóðfylking Marie Le Pen hafi vissulega unnið sína sigra í héraðs- og borgarstjórnarkosningum í Frakklandi, þá tókst þó víða og oft að stöðva sókn fylkingarinnar.“
Hann segir að undanfarin ár hafi mörgum þótt eins og vöxtur slíkra hreyfinga væri óstöðvandi, en að nú kunni að vera merki um breytingar:
„Undanfarin ár hefur manni stundum virst sem framsókn hinna ýmsu ögfahægrihreyfinga í Evrópu (og víðar!) sé óstöðvandi en þetta er kannski örlítill vorboði um að fólki fari að þykja nóg komið,“ skrifar Illugi en við færsluna birti hann skjáskot af frétt sem segir frá sigri sósíalista í borgarstjórnarkosningum Parísar.
Að mati Illuga krefst það þrautseigju að snúa þróuninni við og mikilvægt sé að missa ekki móðinn þrátt fyrir bakslög:
„Það þarf að vinna mikið og lengi til að sigrast á þeim, það þarf að sýna þolgæði og kunna að taka ósigrum en ögurstundin rennur upp á endanum, og þá þarf að grípa tækifærið.“
Hann tekur jafnframt fram að ekki beri að jafna alla stuðningsmenn slíkra flokka við fasista, þótt hann telji hreyfingarnar sjálfar bera slík einkenni:
„Og athugið að þó ég noti hér orðið fasismi, þá þýðir það ekki að allir frambjóðendur og hvað þá allir kjósendur flokka eins og Þjóðfylkingarinnar séu fasistar. Það þýðir bara að slíkar hreyfingar eru einatt fasískar í eðli sínu eða daðra að minnsta kosti við fasismann svo blákalt að það kemur í sama stað niður.“

Komment