
Ísraelskar heraðgerðir hafa drepið að minnsta kosti 22 Palestínumenn, þar á meðal fjögur börn, og sært 83 aðra á síðustu 24 klukkustundum víðsvegar um Gaza-ströndina, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti svæðisins.
Síðan vopnahléið tók gildi 10. október hafa Ísraleskar hersveitir drepið að minnsta kosti 318 manns og sært 788 aðra, segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Heildarfjöldi Palestínumanna sem hafa verið drepnir af ísraelskum hersveitum frá 7. október 2023 hefur nú náð 69.733 og 170.863 hafa særst, þó margir telji töluna mun hærri.
Nýjustu árásirnar áttu sér stað á annatíma þegar fjölmargir á vergangi reyndu að komast í bakarí og á götumarkaði til að nálgast þær vörur sem enn eru fáanlegar áður en þeir snúa aftur í tjald- og neyðarskýli sín.
Á tveimur klukkustundum voru að minnsta kosti 22 Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraels. Fólkið var inni í bílum sínum, í neyðarskýlum eða í því sem eftir er af heimilum þeirra.
Þetta sannar enn og aftur að ofbeldi ísraelska hersins hefur aldrei hætt þrátt fyrir sex vikna vopnahlé sem Bandaríkin miðluðu.
Það sem áður gekk hratt fyrir sig síðustu tvö árin hefur nú breyst í hægfara og stöðugt mynstursbundin dráp. Þetta hefur verið valdið miklu áfalli fyrir fólk á Gaza sem hefði aldrei getað séð fyrir árásir á þessu svæði, í hjarta Gaza-borgar.
Háttsettur fulltrúi Hamas segir að samtökin hafi upplýst milligönguaðila um vaxandi reiði sína vegna áframhaldandi árása Ísraels þrátt fyrir að Hamas hafi virt vopnahléið.
„Við báðum milligönguaðila um að grípa tafarlaust inn í til að koma í veg fyrir hrun samkomulagsins, þar sem hernámsaðilinn stefnir greinilega að því,“ sagði embættismaðurinn í samtali við Al Jazeera, en hann vildi ekki láta nafns síns getið.
Í yfirlýsingu frá Hamas segir enn fremur: „Kerfisbundnin brot landránshersins á samkomulaginu hafa leitt til hundruða mannsfalls vegna stöðugra árása og drápa á fölskum forsendum. Þessar árásir hafa einnig leitt til þess að hersveitir hernámsins hafa fært til brottflutningslínur, sem brýtur gegn samþykktum kortum.“
Ísraelskar loftárásir höfðu í gær áhrif á fjölmörg svæði víðsvegar um Gaza-ströndina, þar sem að minnsta kosti 22 Palestínumenn létu lífið og tugir til viðbótar særðust í nýjustu brotum á sex vikna vopnahléinu.
Hér má sjá myndskeið sem tekið var rétt eftir sprengjuárásina í morgun.

Komment