
Atvinnuvegaráðherra hefur í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að ráða Jarþrúði Ásmundsdóttur til að leiða samningaviðræður við Bændasamtök Íslands vegna endurskoðunar stuðningskerfis landbúnaðarins en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Núverandi fyrirkomulag stuðningskerfisins rennur út í lok þessa árs. Mikilvægt er mati yfirvalda að skýr stefna verði mörkuð um framhaldið og hafa stjórnvöld átt í undirbúningsviðræðum við Bændasamtökin á síðustu mánuðum. Stjórnvöld segjasta hafa einkum tekið mið af þeim áherslum sem finna má í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, landbúnaðarstefnu sem Alþingi samþykkti 2023 og áunninni reynslu af núverandi kerfi.
Jarþrúður Ásmundsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og starfar hjá Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka.

Komment