
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason reitti marga launaháa og talsmenn þeirra til reiði fyrr í dag þegar hann skrifaði á samfélagsmiðlum að það væri kannski ekki skynsamlegt að launahæsta fólk landsins sé mikið að tjá sig um laun þeirra efnaminnstu.
Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var allt annað en sáttur og lét Egil heyra það. Konráð Guðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, sagði Agli að lesa meira en fyrirsagnir.
Bjarni Benediktsson, tilvonandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætisráðherra, ákvað að skella „like“ á athugasemd Konráðs. Ekki liggur fyrir hvort Bjarni skrái þetta „like“ sem vinnuframlag fyrir SA en hann á ekki að byrja í vinnunni fyrr en 1. mars. Hann virðist allavega mjög spenntur fyrir starfinu ...

Komment