1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

9
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Örvænting Moggamanna

Sigurbjörn Magnússon
Sigurbjörn Magnússon
Mynd: LEX

Hermt er að örvænting ríki í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum þar sem viðvarandi taprekstur er sligandi. Sagan segir að stærstu hluthafar Árvakurs með Guðbjörgu Matthíasdóttur auðkonu í fararbroddi hafi fyrirskipað Haraldi Johannessen, ritstjóra og framkvæmdastjóra, og Sigurbirni Magnússyni stjórnarformanni að girða sig í brók og koma rekstrinum í lag. 

Undirliggjandi er ekki verði meiri fjáraustur í miðilinn sem er litaður af skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins með tilheyrandi fréttaflutningi um „óvinina“. Rekstrarmistök þykja einkenna rekstur Árvakurs sem heldur úti fokdýrum starfskröftum sem sumir hverjir sjást sjaldan í vinnunni en rekur úr starfi þurftarfólk á borð við blaðamennina Víði Sigurðsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur. 

Nýverið sást til þeirra Haraldar og Sigurbjörns í húsakynnum skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og einhverjir lögðu saman tvo og tvo. Talið er að erindi þeirra hafi verið að kanna möguleika á nýtingu húsa og lands í Hádegismóum í því skyni að rétta af fjárhag sinn. Þetta yrði sama leið og Ríkisútvarpið fór með því að selja undan sér lóðir og húsakost.

Reifað var í DV að sá möguleiki væri opinn að liðsmenn Guðbjargar hættu prentun Morgunblaðsins og lokuðu prentsmiðju Árvakurs sem á sínum tíma kostaði jafnmikið og fullkominn skuttogari. Með þeim niðurskurði og sölu lóða og húss næði Guðbjörg aftur hluta af fjármunum sínum og losnaði jafnframt undan þeim bagga sem Morgunblaðið hefur verið um langt árabil. Auðkonan notaði einmitt þessa aðferð til að losna frá Prentsmiðjunni Odda sem hennar fólk rak með miklum ósköpum. Það er örvænting í Hádegismóum en handan við hornið er ljósið ...

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Marga Ingeborg Thome er látin
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Loka auglýsingu