
Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir því að loðdýraeldi verði bannað hér á landi og segir að aðbúnaður dýra í greininni samræmist ekki lögum um velferð dýra en þáttur Kveiks á dögunum svipti hulunni af slæmri meðferð minka í minkabúum hér á landi.
Í yfirlýsingu frá samtökunum kemur fram að minkar séu haldnir við aðstæður sem valdi þeim verulegri vanlíðan.
„Ljóst er að aðbúnaður dýra í loðdýraeldi samræmist ekki lögum um velferð dýra sem kveða á um að dýr séu laus við þjáningu, sársauka og meiðsli og að þau geti sýnt sitt náttúrulegt atferli eins og frekast er unnt,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin benda á að minkar séu geymdir í litlum vírbúrum sem valdi streitu og geti leitt til sjálfsskaðandi hegðunar.
Þá er gagnrýnt hvernig dýrin eru aflífuð.
„Dýrin eru jafnframt aflífuð með kolmonoxíð gasi sem er grimmilegt því það getur tekið nokkrar mínútur fyrir dýrin að deyja með slíkri aflífunaraðferð. Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum. Um er að ræða gróft dýraníð,“ segir jafnframt.
Vísa til þróunar í Evrópu
Dýraverndarsambandið bendir á að fjöldi Evrópulanda hafi þegar bannað loðdýraeldi á grundvelli dýravelferðarsjónarmiða.
„Nú hafa 24 lönd Evrópu bannað loðdýrahald vegna dýravelferðarsjónarmiða, nú síðast Pólland sem hefur verið leiðandi í framleiðslu loðdýraskinna í Evrópu,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin telja að Ísland eigi ekki að vera undanskilið þessari þróun og að bann myndi senda skýr skilaboð.
„Slíkt bann myndi senda skýr skilaboð um að velferð dýra sé sett í forgang og að samfélagið sætti sig ekki við atvinnugreinar sem byggja á þjáningu og vanvirðingu gagnvart dýrum.“
Að lokum hvetur Dýraverndarsamband Íslands stjórnvöld til að grípa til aðgerða og fylgja fordæmi annarra ríkja með því að banna loðdýraeldi á Íslandi.

Komment