
Tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsinsMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Lára Garðarsdóttir
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Landsrétti úrskurðaður í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 27. ágúst að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á þjófnaði á hraðbanka í Mosfellsbæ aðfaranótt 19. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur hafnað gæsluvarðhaldskröfu yfir manninum eins og fram hefur komið.
Frekari upplýsingar um rannsókn málsins verða ekki veittar að svo stöddu að sögn lögreglu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment