
Hafdís Björg Kristjánsdóttir segir frá alvarlegu ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi fyrrverandi kærasta síns, Kristjáns Einars Sigurbjörnssonar, sem oftast er kallaður Kleini. Frásögn hennar kemur fram í Facebook-færslu sem hún birti í morgun.
Kristján Einar er, samkvæmt mbl.is einn þeirra sem handteknir voru á Akureyri á dögunum, grunaður um að hafa í félagi við tvo aðra menn beitt konu hrottalegu kynferðisofbeldi.
Í færslunni segir Hafdís að henni hafi reynst erfitt að fylgjast með fréttum um málið.
„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ skrifar hún. „Samviskubitið er að drepa mig.“
Hún segir að margar ástæður hafi verið fyrir því að hún steig ekki fyrr fram. Hún sé enn í áfallavinnu eftir sambandið og hafi ekki verið tilbúin að gera reynslu sína opinbera.
„Ég er enn í áfallavinnu eftir þetta samband og var ekki tilbúin að opna mín blæðandi sár og gera þau að fjölmiðlamat eða commentakerfis drullu.“
Hafdís segir einnig að hún hafi viljað vernda börn sín fyrir þeirri reynslu sem hún gekk í gegnum.
„Ég á líka fimm drengi sem ég hef reynt mitt allra besta að verja fyrir þessum raunveruleika og vildi ekki að þeir þyrftu að sjá eða heyra meira af þessum viðbjóði.“
Hún lýsir því að hún hafi í sumar fengið ráðleggingu um að leita í Kvennaathvarfið með börnunum sínum, en ákveðið í staðinn að fara með þeim til Spánar til að reyna að byggja upp styrk áður en hún tæki á raunveruleikanum.
Hafdís segir að sambandið hafi einkennst af endurteknum ofbeldisatvikum og ótta.
„Ég get ekki talið upp hversu oft hann hefur verið handtekinn eða hversu oft mér hefur verið hótað lífláti,“ skrifar hún.
Hún segir einnig að hún hafi ítrekað leitað til lögreglu.
„Ég leitaði oft eftir aðstoð. Ég hringdi margoft í lögregluna, en alltaf var honum sleppt daginn eftir og ég sat eftir með enn meiri ótta og afleiðingar.“
Í færslunni gagnrýnir hún einnig hvernig fórnarlömb ofbeldis er oft ekki trúað.
„Þegar maður reynir að segja frá ofbeldi eru því miður svo margir sem trúa því ekki, því við virtumst svo hamingjusöm á samfélagsmiðlum. Þá verður maður bara enn ein „klikkuð fyrrverandi“ ekki satt…“
Hafdís segir að á endanum hafi hún ákveðið að stíga fram vegna þess að hún gæti ekki lengur þagað.
„Eina ástæðan fyrir því að ég stíg fram núna er sú að ég hef ekki samvisku til að þegja lengur og horfa upp á þann viðbjóð sem hann skapar.“
Að lokum sendir hún konunni sem kærði mennina þrjá stuðningskveðju.
„Hugur minn er hjá elsku stelpunni sem er að ganga í gegnum þennan ljóta raunveruleika. Ég vona af öllu mínu hjarta að hún fái þann stuðning sem hún þarf á þessum tíma.“

Komment