
Icelandic Food Company, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað Krónu mexíkóska kjúklingasúpu. Innköllun er gerð vegna aðskotahlutar sem fannst í súpu. Frétt um málið birtist á vef Mannlífs í dag.
Í frétt Mannlífs sagði frá færslu sem Margrét Sigríður Jóhannsdóttir birti í Facebook-hópnum Matartips! þar sem hún birti ljósmyndir af annað hvort klósettpappír eða handþurrku sem hún fann í súpu sem hún hafði keypt í Krónunni.
Samkvæmt svari frá Krónunni við fyrri frétt Mannlífs var um að ræða mannleg mistök við pakkningu hjá framleiðslufyrirtækinu.
Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum auðkenna eftirfarandi upplýsingar vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Mexíkósk kjúklingasúpa
Vörumerki: Krónan
Nettómagn: 1 lítri
Framleiðandi: Icelandic Food Company
Framleiðsluland: Ísland
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 17.09.2025
Geymsluskilyrði: Kælivara
Dreifing: Allar verslanir Krónunnar

Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að hægt er að skila vörunni í verslanir Krónunnar gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Komment