
Yfirvöld í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hafa hafið umfangsmikla leit á hinum umdeilda Zorro-búgarði sem áður var í eigu Jeffrey Epstein. Leitin er sögð vera sú fyrsta af þessu tagi sem framkvæmd er á svæðinu, þrátt fyrir að mörg ár séu liðin frá því að ábending barst um að líkamsleifar gætu verið grafnar á jörðinni.
Samkvæmt umfjöllun The New York Times hófu rannsakendur leitina á mánudag. Yfirvöld viðurkenna þó að tíminn sem liðinn er frá meintum atburðum gæti gert rannsóknina erfiða og torveldað möguleika á að finna sönnunargögn.
Raúl Torrez, ríkissaksóknari Nýju-Mexíkó, skrifaði í grein í Albuquerque Journal í síðustu viku að „verulegar hindranir“ gætu verið í vegi fyrir því að finna vísbendingar um hugsanleg brot sem gætu hafa átt sér stað á búgarðinum. Hann lagði þó áherslu á mikilvægi gagnsæis í málinu.
„Íbúar Nýju-Mexíkó og þeir sem kunna að hafa orðið fyrir skaða eiga rétt á fullkominni og gagnsærri greinargerð um hvað við fundum – og hvað við fundum ekki,“ skrifaði Torrez.
Ábendingin sem varð tilefni rannsóknarinnar kom nafnlaust árið 2019, sama ár og Epstein lést í fangelsi í New York. Sá sem sendi ábendinguna sagðist hafa starfað á búgarðinum og hélt því fram að Epstein hefði skipað að tvær stúlkur sem hefðu orðið fyrir misnotkun yrðu grafnar í hæðum nærri eigninni. Óljóst er hvort alríkislögreglan FBI hafi nokkru sinni rannsakað málið ítarlega.
Frá dauða Epsteins hefur búgarðurinn skipt um eigendur. Núverandi eigandi er bandaríski stjórnmálamaðurinn Don Huffines, sem nýverið vann forkosningar Repúblikanaflokksins fyrir embætti ríkisendurskoðanda í Texas. Hann hefur lýst yfir fullum vilja til að vinna með yfirvöldum við rannsóknina.
Rannsókn yfirvalda stendur enn yfir og óvíst er hvenær niðurstöður liggja fyrir.

Komment