Yfirvöld á Tenerife hafa staðfest andlát 35 ára þýskrar konu sem saknað hafði verið. Lík hennar fannst skömmu eftir klukkan 12:30 á laugardag eftir þriggja daga samfellda leit við Mirador de Hilda, einu erfiðasta og torfærasta svæði eyjarinnar.
Konunnar var saknað frá því á fimmtudagskvöldi í síðustu viku, þegar ábending um hvarf hennar barst um klukkan 21:15. Umfangsmikil leit hófst í kjölfarið undir stjórn spænsku lögreglunnar. Þá komu einnig að leitinni sjálfboðaliðar slökkviliðsins í Santiago del Teide og slökkviliðsmenn frá Guía de Isora. Leitin fór fram við afar krefjandi aðstæður þar sem djúp gljúfur og óstöðug jarðvegssvæði töfðu alla framvindu.
Lík konunnar fannst svo eftir hádegi laugardags. Ekki hefur verið staðfest hvað olli andlátinu.
Svæðið við Mirador de Hilda er vinsælt meðal ferðamanna vegna stórbrotins útsýnis, en er þekkt fyrir brattar gönguleiðir, lausan jarðveg og skyndilegar veðurbreytingar sem geta skapað verulega hættu, jafnvel fyrir vana göngumenn.


Komment