1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

8
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Hið nýja andlit Írans

Mojtaba Khamenei, sonur Ali Khamenei, sem drepinn var á dögunum, er talinn næsti æðstiklerkur Írans

Mojtaba Khamenei
Mojtaba KhameneiMojtaba er talinn næsti æðstiklerkur Írans
Mynd: Wikipedia

Mojtaba Khamenei er sagður fremstur í röðinni til að taka við af föður sínum, fyrrverandi æðsta leiðtoga Írans, sem lést í sameiginlegri loftárás bandaríska og ísraelska hersins.

Helstu áhrifamenn í Íran hafa sameinast um stuðning við Mojtaba Khamenei, næstelsta son hins látna æðstaklerks, og undirbúa nú að útnefna hann sem næsta æðsta leiðtoga landsins.

Mojtaba var valinn helsti frambjóðandinn eftir fundi 88 háttsettra klerka sem hafa áhrif á framtíð Írans. Ákvörðunin var tekin undir vaxandi þrýstingi frá Íslamska byltingarvarðliðinu.

Samkvæmt stjórnarskrá Írans eru það klerkarnir sem velja æðsta leiðtogann. Þetta er í annað sinn sem slík kosning fer fram bak við luktar dyr og í fyrsta sinn síðan árið 1989 þegar Ali Khamenei var valinn í embættið. Hann lést í loftárás Bandaríkjanna og Ísraels á laugardag eins og áður segir.

Fundirnir voru haldnir á netinu eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu loftárásir víða um Íran. Mojtaba Khamenei, sem er 56 ára, er harðlínusinnaður íhaldssinni með tengsl við byltingarvarðliðið og hefur jafnan haldið sig utan sviðsljóssins og starfað á bak við tjöldin.

Hann hefur aldrei gegnt opinberu embætti, sem gæti talist veikleiki í baráttu hans um að verða næsti æðstiklerkur. Hins vegar gæti val hans einnig verið túlkað sem merki um að stjórnin hyggist ekki breyta stefnu sinni og muni halda áfram harðri afstöðu gagnvart Washington.

Ef Mojtaba yrði valinn, þyrfti einnig að gefa Írönum einhverjar skýringar. Khamenei heitinn hafði sagt að hann væri andvígur erfðastjórn þar sem hún væri of lík konungsveldi og mætti líta á hana sem svipaða stjórnartíð Íranskeisara.

Miðausturlandastofnunin (Middle East Institute) sagði árið 2022 að „engin vafi væri á því að Mojtaba vilji verða æðsti leiðtogi“, en að hann stæði einnig frammi fyrir ýmsum áskorunum. Stofnunin benti á að hugmyndin um að embættið erfist innan fjölskyldu stríði einnig gegn hefð sjía-íslam, þar sem ættartengsl við slíkt hlutverk séu eingöngu bundin við hina tólf guðlega skipuðu sjía-imama.

Stofnunin sagði jafnframt að ef slíkt yrði reynt gæti það vakið mikla óánægju meðal trúfræðiskóla sjía og ákveðinna hópa innan stjórnmálaelítu Írans.

Bandaríkjaforseti Donald Trump sagði áður að stjórnin í Íran ætti fáa mögulega arftaka þar sem margir helstu leiðtogarnir hefðu fallið í árásunum. Hann bætti við: „Versta sviðsmyndin væri að einhver taki við sem er jafn slæmur og sá fyrri. Við viljum ekki að það gerist.“

Trump sagði einnig að hann vildi helst að „einhver innan úr stjórnkerfi Írans“ tæki við völdum þegar sprengjuárásirnar hófust.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu