1
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

2
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju

4
Innlent

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

5
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

6
Pólitík

Sigmundur Davíð lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB viðræður

7
Heimur

Mikill fjöldi látinn eftir sprengjuregn í Úkraínu

8
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

9
Heimur

Justin Bieber missti stjórn á skapi sínu

10
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

Til baka

Margrét Löf fór inn bakdyramegin í héraðsdóm

Er ákærð fyrir að hafa myrt föður sinn

Karl Ingi Vilbergsson
Karl Ingi Vilbergsson sækir máliðMargrét gæti átt von á þungum dómi verði hún fundin sek.
Mynd: Víkingur

Aðalmeðferð í máli Margrétar Löf hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjaness og er þinghald í því lokað. Samkvæmt upplýsingum Mannlífs fór Margrét bakdyramegin í Héraðsdóm Reykjaness til að forðast fjölmiðla.

Margrét er ákærð í málinu fyrir að hafa orðið föður sínum að bana og fyrir að hafa reynt að gera slíkt hið sama við móður sína en atvikið átti sér stað í apríl á heimili foreldra hennar í Súlunesi í Garðabæ. Margrét hefur neitað sök í málinu.

Lögmaður Margrétar er hinn umdeildi Sigurður G. Guðjónsson en Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari sækir málið. Hann var nýverið í fréttum fyrir að hafa verið handtekinn í sumar eftir að hafa rifist við dyraverði í Reykjavík. Reiknað er með að aðalmeðferðinni ljúki í þessari viku.

Í ákæru á hendur Margréti er hún sökuð um að hafa misþyrmt föður sínum og móður allt frá kl. 22:30 fimmtudagskvöldið 10. apríl og fram til kl. 6:39 um föstudagsmorguninn 11. apríl

Hans Löf, faðir Margrétar, lést skömmu síðar en í ákærunni er sagt að hann hafi reynt að flýja en örmagnast við það. Í ákærunni er Margrét sögð hafa svipt hann lífi „með höggum og spörkum og öðrum brögðum, gripum, tökum og þrýstings og yfirfærslu á þunga, sem beindust einkum að höfði hans, búk og útlimum.“

Sagt er frá áverkum Hans í ákærunni og stendur að hann hafi hlotið „m.a. mikla og alvarlega áverka á höfði, í formi skráma, sára og marbletta í kringum augun og á ennissvæði, sára og mars á nefinu með undirliggjandi broti í nefbrjóskinu, blæðinga og afmyndana á eyrum, skrámusvæða á kinnum og marbletta og húðblæðinga á vinstri kinninni, sára og slímúðarblæðinga á vörunum og í munnslímhúðinni og marbletts á höku. Á framanverðum hálsi voru skrámusvæði, sem og á hægri og vinstri hlið hálsins, auk marbletta á hálsinum með undirliggjandi mjúkvefjablæðingu, þá hlaut hann mjúkvefjablæðingu aðliggjandi barkakýlinu, og efst í höfuðlöngum. Á handleggjum beggja handa voru skrámur og marblettir, þá voru marblettir á hægri þumal- og vísifingri. Mar á hægra læri og á hnénu. Stórt mar á vinstri mjöðm og niður á vinstra læri með undirliggjandi miklum margúl og marbletta á vinstra læri, hnénu og fótleggnum. Á bolnum hlaut hann fjölda og djúpa marbletti, ásamt drjúgum djúpum blæðingum í mjúkvef kviðarins og mjaðmagrindarinnar og mjúkvefjablæðingar í lendhryggnum. Fjölda rifbeinsbrota sem mynduðu brotakerfi neðarlega í aftanverðri brjóstgrindinni beggja vegna, brot í hægri þverindi fyrsta lendarhryggjarliðsins, blæðingu í lungnavefinn beggja vegna og blæðingar yst og ofarlega á hægri hlið hjartans og blæðingar í lifravefinn.“

Hún er einnig ákærð fyrir að hafa reynt að bana móður sinni en móðir Margrétar hefur ítrekað heimsótt hana í fangelsi meðan hún hefur verið í gæsluvarðhaldi.

_77A0912
Fjölmiðlar að störfum í héraðsdómi
Mynd: Víkingur
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda
Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael
Heimur

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði
Landið

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum
Myndir
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði
Pólitík

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

Minnist James Van Der Beek með áður óbirtum myndum
Myndir
Heimur

Minnist James Van Der Beek með áður óbirtum myndum

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

Pútín-kvikmynd Jude Law veldur deilum í Evrópu
Heimur

Pútín-kvikmynd Jude Law veldur deilum í Evrópu

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl
Innlent

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl

Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda
Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda

Innbrot í heimabæ Stjörnunnar
Innlent

Innbrot í heimabæ Stjörnunnar

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl
Innlent

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl

Loka auglýsingu