1
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

2
Fólk

Selja einstakt einbýli á Álftanesi

3
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

4
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

5
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

6
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

7
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

8
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

9
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

10
Innlent

Landasali á ferð

Til baka

„Markmiðið að stjórnvöld séu meðvituð um hvaða áhrif ákvarðanir þeirra hafa“

Ríkisstjórn Íslands tók á móti barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á fundi ríkisstjórnar í morgun

Guðmundur Ingi Kristinsson
Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherraTók á móti barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Mynd: Kristinn Magnússon

Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra tók á móti barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á fundi ríkisstjórnar í morgun ásamt öðrum ráðherrum ríkisstjórnar Íslands

Á fundinum kynntu fulltrúar ráðsins tillögur sínar og áherslur er varða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, og einnig hvernig þau sjá fyrir sér að staðið verði að framgangi þeirra hér á landi.

Alls eru tillögurnar tíu; fjalla þær um skólamál - heilbrigðismál, lýðræði, fjölbreytileika og heildstæða ungmennastefnu.

Eftir að kynningu ungmennanna var lokið átti Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar mjög gott samtal við börnin um það sem þeim liggur mest á hjarta og sýn þeirra á verkefnin fram undan sem lúta að heimsmarkmiðunum.

„Í vetur gaf mennta- og barnamálaráðuneytið út leiðarvísi um hagsmunamat út frá réttindum barna í allri stefnumótun stjórnvalda. Markmiðið er að stjórnvöld séu meðvituð um hvaða áhrif ákvarðanir þeirra hafa á börn og réttindi þeirra,“ segir Guðmundur Ingi og bætir því við ekki sé bara nóg að hlusta heldur „einnig innleiða mat á hagsmunum barna í okkar verklag.“

Tilgangur fundarins er að skapa vettvang þar sem ungmenni geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri við stefnumótandi aðila um heimsmarkmiðin, sjálfbæra þróun og önnur málefni sem þau varða.

Ungmennaráðið samanstendur af 12 fulltrúum, víðast hvar af landinu, á aldursbilinu 13 til 18 ára.

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður skýrt á um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif á málefni er þau varða.

Fyrir sjö árum var ákveðið að virkja þátttöku ungmenna á Íslandi í gegnum barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og er hlutverk ráðsins það að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin, ásamt því að koma áherslumálum sínum á framfæri.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

TikTok-stjarna líflátin opinberlega
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

Var rænt í miðju streymi og tekin færð inn á torg.
Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi
Myndir
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

Þrír látnir í brimi við Tenerife
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra
Menning

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Selja einstakt einbýli á Álftanesi
Myndir
Fólk

Selja einstakt einbýli á Álftanesi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma
Menning

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma

Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Loka auglýsingu