
Snikkersbitar/BrowniesVaran hefur verið innkölluð
Mynd: Matvælastofnun
Matvælastofnun varar neytendur við Snikkers Brownie frá bakaríinu 17 Sortum þar sem jarðhnetur og hveiti voru ekki tilgreind sem innihaldsefni á umbúðum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ákveðið að innkalla vöruna.
Um er að ræða eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: 17 Sortir
- Vöruheiti: Snikkers brownie/snikkersbitar
- Framleiðandi: 17 Sortir
- Best fyrir dagsetning: 23.08.25
- Strikanúmer: 5694230600434
- Dreifing: Verslanir Hagkaups á höfuðborgarsvæðinu
Neytendur sem eru með ofnæmi fyrir jarðhnetum eða hveiti eru sérstaklega hvattir til að neyta ekki vörunnar. Þeir geta annaðhvort fargað henni eða skilað henni í verslun Hagkaupa í Smáralind og fengið endurgreitt.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment