
Gert í samráði við Heilbrigðiseftirlit ReykjavíkurIstanbul market sem flytur það inn til landsins
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Piporé Yerba Mate te samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni. Teið er frá Argentínu og er það Istanbul market sem flytur það inn til landsins. Varan er innkölluð vegna þess að það greindist of hátt magn af leifum af varnarefninu anthraquinone. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Tilkynningin um innköllunina kom í gegnum RASFF evróska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Piporé
- Vöruheiti: Yerba Mate
- Nettómagn: 250 g
- Geymsluþol: Best fyrir dags. 31.12.2025.
- Framleiðsluland: Argentína
- Innflytjandinn: Istanbul Market ehf., Grensásvegi 10, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Istanbul Market, Grensásvegi 10.

Hið innkallaða te
Mynd: MAST
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment