
Í dagbók lögreglu frá því í gærkvöldi og í nótt er greint frá því að leigubílstjóri hafi óskað eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem stakk af án þess að greiða.
Tilkynnt var um þjófnað í verslun þar sem grímuklæddir menn komu inn í verslun og tóku dýra muni og hlupu á brott. Lögregla fór á vettvang til að rannsaka málið en gerendur voru farnir af vettvangi.
Lögreglan fékk tilkynningu um nágrannaerjur þar sem íbúi vann eignaspjöll á hurð annars íbúa en hann teiknaði hakakross á hurðina. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á Reykjavíkurflugvöll vegna farþega sem var æstur og ógnandi og undir áhrifum áfengis. Lögregla náði lítið að ræða við hann sökum ölvunarástands hans og lét hann ófriðlega. Hann var vistaður í fangaklefa vegna ölvunarástands.
Einstaklingur handtekinn fyrir að trufla störf lögreglu en hann fór ekki eftir fyrirmælum og var beittur piparúða og neitaði að segja til nafns. Hann var fluttur á lögreglustöð og þrifinn af honum piparúðinn og látinn laus að því loknu.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna umferða óhapps þar sem ekið var á barn á hjóli á litlum hraða. Barnið var óslasað að sögn lögreglu.
Komment