
Ólafur Þór Ólafsson hefur verið ráðinn sem sveitarstjóri Reykhólahrepps í stað Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur en greint er frá því á vefsíðu hreppsins.
Ingibjörg hefur verið sveitarstjóri sveitarfélagsins síðan árið 2010 að undanskildum árunum ágúst 2018 til maí 2020 en hefur nú ákveðið að hverfa til annara starfa.
„Ólafur Þór er reyndur af vettvangi sveitarfélaganna og þekkir vel til þeirra verkefna sem þau sinna bæði sem kjörinn fulltrúi sem og ráðinn framkvæmdastjóri, síðast sem sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps árin 2020 til 2024. Þá er hann með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu og kennsluréttindi. Gengið er út frá því að Ólafur Þór komi til starfa hjá Reykhólahreppi nú síðar í sumar,“ segir á vefsíðunni hreppsins.
Komment