1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Trump ekki á bak við „John Barron“-símtalið

Margir héldu að Bandaríkjaforseti hefði hringt inn í sjónvarpsþátt undir frægu dulnefni en sjónvarpsstöðin hafnar þeirri kenningu

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald TrumpDonald Trump er löngu hættur að nota John Barron nafnið
Mynd: Shutterstock

Myndskeið sem farið hefur eins og eldur í sinu á netinu, þar sem maður að nafni „John Barron“ hringir reiður inn í C-SPAN vegna dóms Hæstiréttur Bandaríkjanna um tollamál, hefur orðið til þess að sumir velta því fyrir sér hvort Donald Trump hafi sjálfur verið á línunni.

Símtalið, sem var 32 sekúndur að lengd og barst á föstudagsmorgni frá manni sem kynnti sig sem „John í Virginíu“ í símaverinu, en kallaði sig „John Barron“ þegar hann var kominn í útsendingu, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðan það fór á flug í gær. Rödd mannsins þótti mörgum minna verulega á rödd forsetans.

„Sko, þetta er versta ákvörðun sem þið hafið nokkru sinni tekið á ævinni, nánast,“ sagði hringjandinn. „Og Jack mun vera sammála mér, ekki satt? En þetta er hræðileg ákvörðun. Og þið hafið Hakeem Jeffries, sem, hann er hálfviti! Og þið hafið Chuck Schumer, sem getur ekki einu sinni eldað hamborgara. Auðvitað eru þetta fólk ánægt! En alvöru Bandaríkjamenn verða ekki ánægðir. Og konan sem talaði áðan, ég geri ráð fyrir að hún sé kona, hún er demókrati, hún er … gjörsamlega niðurbrotin yfir þessu.“

Nafnið John Barron var dulnefni sem Trump notaði á níunda og tíunda áratugnum þegar hann lét blaðamenn fá upplýsingar. Sú staðreynd, ásamt röddinni sem margir töldu líkjast rödd forsetans, varð til þess að jafnvel sumir þekktir gagnrýnendur hans töldu að Trump hefði sjálfur hringt inn.

C-SPAN hefur þó nú afsannað þessar vangaveltur og upplýst að um líklegt grín sé að ræða.

„Þar sem svo mörg ykkar eru að ræða hringjandann á föstudag sem kynnti sig sem „John Barron“, viljum við slá þessu föstu: þetta var ekki forsetinn,“ sagði sjónvarpsstöðin í yfirlýsingu sem birt var á X. „Símtalið kom frá símanúmeri í miðhluta Virginíu og barst á sama tíma og forsetinn sat á víðfrægum fundi í Hvíta húsinu með ríkisstjórum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu