1
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

2
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

3
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

4
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

5
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

6
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

7
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

8
Minning

Þorkell Jóelsson er látinn

9
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

10
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

Til baka

Palestínumenn lýsa niðurlægjandi yfirheyrslum við heimkomuna til Gaza

„Þeir vilja ekki að fólk snúi heim. Þeir vilja frekar að sem flestir fari“

Rafah - Gaza
Móðir og barnMæðgur bíða í rútu eftir að komast frá Gaza
Mynd: BASHAR TALEB / AFP

Palestínumenn sem nýlega fengu að snúa aftur til Gaza í gegnum Rafah-landamærastöðin lýsa niðurlægjandi meðferð, yfirheyrslum og þrýstingi af hálfu ísraelskra yfirvalda. Sumir segjast jafnvel hafa verið beðnir um að veita Ísraelska hernum upplýsingar í skiptum fyrir að fá að snúa heim.

Sabah al-Raqab og fimm dætur hennar voru meðal 12 Palestínumanna sem fengu leyfi frá ísraelskum yfirvöldum til að snúa aftur til Gaza eftir að Rafah-landamærin við Egyptaland voru að hluta opnuð á ný. Hún sagði í viðtali við Al Jazeera Arabic að fjölskyldan hefði lagt af stað frá egypsku borginni Arish um klukkan tvö að nóttu og komið að landamærunum klukkustund síðar. Þau biðu þar í nokkrar klukkustundir áður en egypsk yfirvöld hleyptu þeim áfram.

Eftir ítarlegar spurningar og leit af hálfu fulltrúa Evrópusambandsins og palestínska heimastjórnin fengu þau loks að halda áfram. Þegar þau voru komin inn á Gaza-svæðið mættu þau hins vegar ísraelskum hermönnum nærri svokallaðri Morag-gönguleið, sem aðskilur Rafah frá öðrum hlutum Gasa.

Samkvæmt frásögn al-Raqab voru hún og fjölskylda hennar yfirheyrð af tveimur ísraelskum yfirheyrslumönnum sem töluðu reiprennandi arabísku. Þeir buðu henni val: að yfirgefa Gaza á ný eða veita hernum upplýsingar.

„Við þurfum að þú verðir augu okkar og eyru,“ sögðu þeir að hennar sögn. Fjölskyldunni var loks hleypt áfram eftir að fulltrúar Evrópusambandsins gripu inn í, og héldu þau til Nasser-sjúkrahússins í Khan Younis.

Svipaða sögu segir Rotana al-Riqib, palestínsk kona á fertugsaldri, sem sneri einnig aftur frá Egyptalandi í gegnum Rafah. Hún lýsir ferðinni sem „niðurlægjandi“ og segir að hún, móðir hennar og önnur kona frá Khan Younis hafi verið yfirheyrðar af Ísraelum.

„Þeir leyfðu okkur ekki að taka neitt með okkur. Þeir tóku allt, jafnvel eigur barnanna minna. Við fengum aðeins að halda eftir fötum,“ sagði hún í samtali við AFP.

Rafah-landamærastöðin, sem er eina leið Gaza til umheimsins sem liggur ekki um Ísrael, hafði verið að mestu lokuð síðan ísraelskar hersveitir tóku hana yfir í maí 2024 í stríðinu við Hamas, þar sem þær frömdu þjóðarmorð á Palestínumönnum.

Al-Riqib segir að opnunin sýni að yfirvöld vilji ekki hleypa mörgum Palestínumönnum aftur inn á Gaza.

„Þeir vilja ekki að fólk snúi heim. Þeir vilja frekar að sem flestir fari,“ sagði hún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Þórir Einarsson er fallinn frá
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

Hnífaræningi hótaði fólki
Innlent

Hnífaræningi hótaði fólki

Notaði bíla eins og fótbolta
Innlent

Notaði bíla eins og fótbolta

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael
Heimur

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Loka auglýsingu