1
Fólk

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir

2
Innlent

Strætó stofnaði lífi ökumanna í hættu

3
Innlent

Brynjar hæfastur en dró umsókn til baka

4
Fólk

Sex matvæli sem aldrei ætti að gefa hundum að éta

5
Fólk

Margrét Tryggva bölvar breytingum á Messenger

6
Innlent

Valdimar Örn sýndi Ghislaine Maxwell Ísland árið 2014

7
Innlent

MAST varar við ofnæmissnakki

8
Heimur

Ildar „Scar“ Galiyev yfirheyrður vegna morðsins á Einár

9
Innlent

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti

10
Fólk

„Fólk deyr úr einelti”

Til baka

Páll segir Reykjavik Excursions vera „einokunarskítafyrirtæki“

„Mér finnst þetta algerlega óboðleg framkoma við farþega“

Reykjavik Excursions
Rúta frá Reykjavík ExursionsMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Reykjavik Excursions

Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur og fyrrum blaðamaður, vandar Reykjavik Excursions ekki kveðjurnar í pistli sem hann ritar á samfélagsmiðla en rithöfundurinn nýtti sér þjónustu fyrirtæksins þegar kom heim til Íslands eftir ferðalag.

„Eftir að hafa ferðast með flugvélum, leigubílum, þriggja hjóla túktúk bílum og lestum hingað og þangað um heiminn síðustu sex vikurnar þá var visst áfall að fara síðasta legginn með Reykjavik Excursions eða Icelandia eða hvað þetta einokunarskítafyrirtæki heitir,“ skrifar Páll um fyrirtækið. Segir hann þjónustulund Reykjavik Excursions ekki neina þar sem fyrirtækið þurfi hafi ekki neina alvöru samkeppni að flytja fólk frá Keflavíkurflugvelli.

„Ég sá engin skilti þar sem ég staulaðist í slabbi, kulda og myrkri út að illa upplýstum skýlum þar sem fólki er smalað saman. Rútan fer svo þegar hvert sæti er skipað án þess að nokkur maður ávarpi farþega eða bjóði þá velkomna,“ skrifar rithöfundurinn.

„Hitt er samt verra að fyrir fólk af minni stærð er svo svívirðilega stutt á milli sætanna að maður situr samankrepptur og þvingaður með gigtveika hnjáliði í járnavirki næsta sætis fyrir framan meðan rútan skröltir yfir klakahryggi og skorninga illa mokaðra gatna.“

Páll segir að þetta minni meira á gripaflutninga í þriðja heiminum en það sem kemur fram í auglýsingum Reykjavik Excursions.

„Mér finnst þetta algerlega óboðleg framkoma við farþega. Þetta sagði ég við bílstjórann þegar ég sótti töskuna í lestina og hann yppti öxlum og sagðist oft hafa heyrt þetta en bætti svo við: Það er ekkert sem við getum gert,“ skrifar Páll að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Gat ekki séð um sjálfan sig
Innlent

Gat ekki séð um sjálfan sig

Margrét Tryggva bölvar breytingum á Messenger
Fólk

Margrét Tryggva bölvar breytingum á Messenger

Valdimar Örn sýndi Ghislaine Maxwell Ísland árið 2014
Innlent

Valdimar Örn sýndi Ghislaine Maxwell Ísland árið 2014

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins
Heimur

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins

Brynjar hæfastur en dró umsókn til baka
Innlent

Brynjar hæfastur en dró umsókn til baka

Sex matvæli sem aldrei ætti að gefa hundum að éta
Fólk

Sex matvæli sem aldrei ætti að gefa hundum að éta

Vetur konungur mun ráða ríkjum næstu daga
Landið

Vetur konungur mun ráða ríkjum næstu daga

Samkvæmt skýrslu hafa aðeins tvö prósent Epstein-gagna verið birt
Heimur

Samkvæmt skýrslu hafa aðeins tvö prósent Epstein-gagna verið birt

MAST varar við ofnæmissnakki
Innlent

MAST varar við ofnæmissnakki

Þorgerður Katrín í Japan
Pólitík

Þorgerður Katrín í Japan

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum
Sport

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum

Innlent

Gat ekki séð um sjálfan sig
Innlent

Gat ekki séð um sjálfan sig

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti
Innlent

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti

Valdimar Örn sýndi Ghislaine Maxwell Ísland árið 2014
Innlent

Valdimar Örn sýndi Ghislaine Maxwell Ísland árið 2014

Brynjar hæfastur en dró umsókn til baka
Innlent

Brynjar hæfastur en dró umsókn til baka

MAST varar við ofnæmissnakki
Innlent

MAST varar við ofnæmissnakki

Loka auglýsingu