1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

7
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Til baka

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins

Ný bók veitir innsýn inn í fjölskyldulíf krónprinsins og eiginkonu hans

Vilhjálmur prins og börn
Vilhjálmur prins með Karlottu og GeorgKrónprinsinn á víst til að vera nokkuð fyndinn
Mynd: OLI SCARFF / AFP

Vilhjálmur prins hefur upplýst að hann hafi sett fram óvenjuleg og óhefðbundin nöfn þegar kom að því að nefna fyrsta barn sitt, erfingja bresku krúnunnar. Vilhjálmur prins og eiginkona hans Katrín eignuðust soninn Georg árið 2013, en mánuðina fyrir fæðingu hans veltu þau fyrir sér fjölda nafna.

Þetta kemur fram í nýrri ævisögu, William and Catherine: The Intimate Inside Story, eftir konunglega ritstjóra The Mirror, Russell Myers. Þar segir að hjónin hafi „varið klukkustundum“ í að rannsaka möguleg nöfn, og að Vilhjálmur hafi oft komið með afar óvæntar uppástungur.

Bókin, sem byggir á einkaréttarsamtölum við fólk innan hallarinnar, varpar nýju ljósi á stórar stundir í lífi hjónanna. Ein sú stærsta var þegar þau stigu út á tröppur St Mary’s-sjúkrahússins í Lundúnum og kynntu frumburð sinn fyrir heiminum.

Samkvæmt bókinni hófu Vilhjálmur og Katrín að undirbúa komu barnsins þegar Katrín var komin fimm mánuði á leið og ákváðu að halda kyni barnsins leyndu fram að fæðingu. Þau keyptu því barnavörur í hlutlausum litum. Hins vegar reyndist erfitt að komast að samkomulagi um nafn.

Myers skrifar að Katrín hafi helst viljað nafnið Alexander fyrir dreng eða Alexandra fyrir stúlku, sem var einnig millinafn Elísabetar drottningar. Vilhjálmur hafi hins vegar í einrúmi lýst yfir ósk um að eignast stúlku og viljað heiðra móður sína, Díönu prinsessu, með millinafni.

Samkvæmt heimildum bókarinnar skiptist Katrín á hugmyndum við vinkonur sínar sem nýlega höfðu eignast börn. Vinur gaf þeim jafnframt bók með barnanöfnum, sem þau flettu í klukkustundum saman, oft með hlátrasköllum þegar annað hvort þeirra kom með „enn furðulegri uppástungu“.

Konunglegar heimildir segja að Vilhjálmur hafi jafnvel byrjað fundi með fjölmiðlateymi sínu á að kasta fram nöfnum á borð við: „Hvað finnst ykkur um Rodney fyrir strák, eða kannski Graham?“, áður en hann sprakk úr hlátri.

Þrátt fyrir grín og óhefðbundnar hugmyndir valdi Vilhjálmur að lokum hefðbundnari leið. Hann hafði tvö nöfn á lokastigi fyrir son sinn: Georg og Lúðvík en fullu nafni heitir prinsinn ungi Georg Alexeander Lúðvík .

Ævisagan fjallar einnig um hvernig Vilhjálmur verndaði börn sín í kjölfar krabbameinsgreiningar Katrínar, hvernig hjónin brugðust við opinberum ásökunum Harrý prins og Meghan Markle, og ágreining Vilhjálms við föður sinn, Karl III, vegna frænda hans, Andrew Mountbatten-Windsor (áður Andrés prins).

Russell Myers segir bókina gefa óvenju náið yfirlit yfir líf hjónanna, allt frá kynnum þeirra í St Andrews-háskólanum til dagsins í dag, og sýni hvernig þau hafi mótað sýn sína á nútímalegt konungdæmi á tímum mikilla breytinga og óvissu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Loka auglýsingu