1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

7
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

8
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

9
Minning

Megas er látinn

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti

Var gómaður í Breiðholti og Kópavogi

Seljahverfi Breiðholt
Seljahverfi í BreiðholtiVar í tvígang gómaður þar
Mynd: Shutterstock

Albanskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir nokkur brot, þar á meðal peningaþvætti.

Hann er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot, peningaþvætti og lögreglulagabrot með því að hafa, mánudaginn 14. júlí 2025, utandyra við Jafnasel í Reykjavík, óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að stöðva og hlaupið á brott undan lögreglu uns lögregla hljóp hann uppi og stöðvaði för hans stuttu síðar og haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 1,91 g af maríhúana og 4,36 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 26.000, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða og lagði hald á.

Þá er hann einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa í íbúð að Klyfjaseli 2 í Reykjavík, í félagi við þekktan aðila, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 257,70 g af maríhúana og 6,39 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 40.000, sem ákærði benti lögreglu á við leit og lagði hald á.

Maðurinn er sömuleiðis ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa, sunnudaginn 27. júlí 2025, utandyra við Hamraborg í Kópavogi, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 30,38 g af maríhúana og 6,32 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 90.000, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða og lagði hald á.

Þá að lokum er maðurinn ákærður fyrir útlendingalagabrot með því að hafa, dvalið í heimildarleysi hér á landi án vegabréfsáritunar og dvalarleyfis frá 26. október 2024, en ákærði fór huldu höfði hér á landi í kjölfar tilkynningar Útlendingastofnunar dags. 21. júlí 2025, þar sem ákærða var tilkynnt um hugsanlega brottvísun og endurkomubann.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Mál hans verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 24. mars.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu