1
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

2
Fólk

Höllin lækkuð um 45 milljónir

3
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

4
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

5
Minning

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

6
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

7
Innlent

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum

8
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

9
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

10
Minning

Bryndís Björg Guðmundsdóttir er látin

Til baka

Fagnar dómnum yfir Friðgeiri

„Gríðarleg vanvirðing við fólk sem eru í alvörunni þolendur barnaníðs.“

Friðgeir Sveinsson
Friðgeir SveinssonNeitaði sök í málinu.
Mynd: YouTube

Baráttukonan Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir er ein þeirra sem fagna mjög því að Friðgeir Sveinsson hafi verið dæmdur fyrir hatursorðsræðu en Ugla starfaði sjálf fyrir Samtökin '78 sem urðu fyrir barðinu á ummælum Friðgeirs.

Í ummælum sínum kallaði hann trans fólk og Samtökin '78 perverta og barnaníðinga.

„Ég held að þessi dómur velti upp mikilvægum spurningum um tjáningarfrelsi, mörk og hvert við viljum stefna sem samfélag,“ skrifar Ugla á Facebook.

„Finnst okkur réttlætanlegt að það sé hægt að níðast á einstaklingum og samtökum án takmarkana, og saka þau um grafalvarlega glæpi eins og barnaníð af engu tilefni? Á fólk að þurfa að sitja undir slíku þegjandi og hljóðarlaust? Hér er nefnilega ekki bara verið að lýsa skoðun, heldur henda fram mjög alvarlegum ásökunum um viðurstyggilegan glæp. Sömuleiðis er þetta gríðarleg vanvirðing við fólk sem eru í alvörunni þolendur barnaníðs.“

„Fræðsla Samtakanna ‘78 hefur alla tíð, síðan 1980 þegar fyrstu formlegu fræðslur byrjuðu, snúist um að fræða og vekja athygli á tilvist hinsegin fólks. Þar hefur fólk deilt sinni reynslu, útskýrð eru hugtök og reynt að uppræta fordóma - og eru kjarnaskilaboðin alltaf að við eigum að koma vel fram við hvort annað,“ segir Ugla og telur hana gríðarlega mikilvæga og að hún hafi í raun sjaldan verið mikilvægari en nú.

„Samtökin ‘78, líkt og önnur samtök og stofnanir sinna fræðslu- og forvarnarstarfi í samræmi við samninga og aðalnámskrá. Allar staðhæfingar og upphrópanir um meinta innrætingu, lýsingar á kynlífi eða jafnvel sýnikennsla í skólum landins eru úr lausu lofti gripnar, og uppspuni hræddra einstaklinga sem eyða meiri tíma í samsæriskenningarholum á internetinu en í raunheimum,“ og segist leyfa sér að fullyrða í ljósi starfa sinna hjá Samtökunum '78 til nær tveggja áratuga.

„Að fólk haldi virkilega að eitthvað slíkt væri yfir höfuð leyft segir ýmislegt um vanþekkingu þeirra á skólastarfi, og fordóma þeirra í garð hinsegin fólks. Ég fagna því þessum dómi, og vonast til þess að hann stuðli að því að kæla umræðuna, setja skýr mörk, og sendi þau skilaboð að við getum ekki sakað fólk af tilefnislausu um jafn alvarlegan glæp og barnaníð fyrir það eitt að vera hinsegin. Það hlýtur að segja sig sjálft að það er óviðunandi í frjálsu samfélagi,“ skrifar hún svo að lokum.

Ummælin fjögur

„Ég ætla bara að segja það upphátt!! Þetta er fyrrverandi fræðslustjóri Samtakanna78.. Og þetta er “KARLMAÐUR” Samtökin78 eru í mínum huga ekkert annað í dag en hagsmunasamtök barnaníðinga og annara perverta sem eru að leita að auðveldum fórnarlömbum.. Og svo má ég alls ekki ræða það af því að þá er ég víst “Trans-fóbískur”… Ég er ekkert hræddur við kynferðislega brenglað fólk.. Og ég vill ekki sjá þessa perverta í umgengni við börn.. Og alls ekki að þetta brenglaðra fólk stundi einhverskonar “Kynfræðslu” í skólum.. Þar sem börn þurfa, og verða að sitja undir þessum perverta áróðri er ekki í lagi.. Í raun alger skandall að umburðarlindi með geðsjúkdómum leiði til þess að kynferðislega stórbrengluðu fólki sé bókstaflega hleypt að börnum… Væntanlega til að skoða hvað er í boði…Finna hentug fórnarlömb.. þetta er sturlun.. Alger sturlun… Og Nei, ég mun ekki biðjast afsökunar á því að benda á hið augljósa.“

„Og það þarf líka að fara stoppa þetta hérlendis.. Samtökin 78 hafa að mínu mati verið stórhættuleg börnum síðan að Trans Geðsjúklingarnir tóku þau yfir. Samtökin 78 hafa sett ofuráherslu á að ná til barna… Og ég endurtek her með þá 2 skoðun mína að hegðun og áherslur Samtakanna 78 er að mínu mati ekkert annað en hegðun barnaníðinga á veiðum.“

„Það er blákalt mat mitt að hegðun samtakanna 78 er ekkert annað en barnanýð. Þetta er að mínu mati bæði geðveikt og kynferðislega brenglað fólk sem hefur með orgi, ofsóknum og yfirgangi hrætt þetta auma lið hjá Reykjavíkurborg og Menntastofnun til að gefa eftir.. Það eru pervertar að fara inní kennslustofur að innræta börn á mótunaraldri með lygum og pervertisma… Væntanlega til að geta byrjað að misnota þessi börn sem fyrst.. Má segja að þessi kynferðislega brengluðu geðsjúklingar séu að undirbúa veisluborð framtíðarinnar… Það eru bara til tvö kyn.. Restin er alger geðveiki og þessi geðveiki er komin markvisst inní grunnskóla ungra barna.. Það á að kalla hlutina réttum nöfnum!!“

„Sem betur fer eru einstaklingar að þora að standa í lappirnar gegn þessari geðsturluðu þróun sem Trans Activistar eru að troða uppá börn. – Ég ítreka hér þá skoðun mína að Samtökin 78 séu ekkert annað en Hagsmunafélög Barnaníðinga á veiðum.. Og það á að halda slíku fólki frá börnum.. Það á ekki að hleypa pervertum í greddukasti inní kennslustofur að skoða börn til að innræta með geðveiki..“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega
Myndir
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Skelltu sér reglulega í golf
Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles
Heimur

Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti
Innlent

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti

Svíar munu sekta samfélagsmiðla fyrir „morðauglýsingar“
Heimur

Svíar munu sekta samfélagsmiðla fyrir „morðauglýsingar“

Rússneskur embættismaður fannst látinn í bíl sínum
Heimur

Rússneskur embættismaður fannst látinn í bíl sínum

Hildur gefur eftir borgarstjórastólinn
Slúður

Hildur gefur eftir borgarstjórastólinn

Fyrrum kærasti Kim Kardashian segist hafa sofið hjá mörg þúsund konum
Heimur

Fyrrum kærasti Kim Kardashian segist hafa sofið hjá mörg þúsund konum

James Comey ákærður vegna ljósmyndar af skeljum
Heimur

James Comey ákærður vegna ljósmyndar af skeljum

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR
Innlent

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR

Íranir ákærðir fyrir skjalafals
Innlent

Íranir ákærðir fyrir skjalafals

Starfsmaður fargaði líki konu í dýragarði
Heimur

Starfsmaður fargaði líki konu í dýragarði

Börn allt niður í 10 ára handtekin í stórri lögregluaðgerð í Evrópu
Heimur

Börn allt niður í 10 ára handtekin í stórri lögregluaðgerð í Evrópu

Innlent

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti
Innlent

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti

„En ég vona bara að bréfritara líði betur eftir að hafa losað þennan skít úr sálinni.“
Meiðsli eftir umferðarslys í Hafnarfirði
Innlent

Meiðsli eftir umferðarslys í Hafnarfirði

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR
Innlent

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR

Íranir ákærðir fyrir skjalafals
Innlent

Íranir ákærðir fyrir skjalafals

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum
Innlent

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum

Loka auglýsingu