
Ný viðburðaröð um fatnað, textíl, ábyrgari neyslu og hringrásarhagkerfið hefst á Borgarbókasafninu Gerðubergi miðvikudagskvöldið 11. mars. Röðin er haldin í samstarfi við Listaháskóla Íslands og er í umsjón Rögnu S. Bjarnadóttur, lektors og fagstjóra við fatahönnunarbraut skólans.
Á næstu þremur miðvikudagskvöldum verður boðið upp á fjölbreytta og fræðandi viðburði þar sem fjallað verður um tengsl fatnaðar, neyslu og hringrásarhagkerfis.
Fyrsti viðburðurinn fer fram 11. mars kl. 19:30–21:00. Þar flytur Ragna erindi og leiðir umræðu um textíl, fatnað, fataskápa og hvernig hægt er að nálgast fatakaup með ábyrgari hætti. Yfirskrift erindisins er Fataskápurinn og hringrásarhagkerfið.
Miðvikudagskvöldið 18. mars verður sjónum beint að fataviðgerðum fyrr og nú. Þá flytur Ragna erindið Fötin sem við gerum við, eru fötin sem skipta máli, þar sem rætt verður um skapandi og ósýnilegar viðgerðir, auk þeirra tilfinninga og þess virðis sem tengist sumum flíkum okkar.
Síðasti viðburðurinn fer fram 25. mars og ber yfirskriftina Skapandi fataviðgerðir. Þar leiða Ragna og Katrín Káradóttir, kennari við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands, verklega smiðju þar sem þátttakendur geta prófað sig áfram í viðgerðum á fatnaði og lært aðferðir til að lengja líftíma flíka. Á staðnum verða sýnidæmi, fræðsluefni, verkfæri, saumavélar, garn og textílefni. Þátttakendur eru þó hvattir til að taka með sér flíkur sem þarfnast lagfæringa, auk eigin efniviðar og verkfæra.
Viðburðaröðin er haldin undir merkjum Make-a-thek, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi tekur þátt í næstu þrjú árin. Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur þar sem fólk getur lært nýjar aðferðir í handavinnu, gefið gömlum flíkum nýtt líf og deilt þekkingu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

Komment