Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Toms Opulskis í sex mánaða fangelsi en dómurinn var nýlega birtur.
Opulskis var ákærður fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa laugardaginn 23. ágúst 2025 staðið að innflutningi á samtals 427,69 grömmum af kókaíni með styrkleika 69-70%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands, falin innanklæða, sem farþegi með flugi frá Kaupmannahöfn í Danmörku til Keflavíkurflugvallar.
Opulskis játaði brot sitt en hann hefur ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi áður á Íslandi. „Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærði hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu,“ segir í dómnum.
Dómur hans er óskilorðsbundinn og þarf hann að greiða 1.656.273 krónur í sakarkostnað.


Komment