
Ritstjórn Vísis hefur ákveðið að skipta út ljósmynd við frétt miðilsins frá því í morgun en þar sést Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, halda á tveggja ára syni sínum. Snorri hafði kvartað mjög undan myndavali fréttarinnar, þar sem hann er sakaður um rasisma en Mannlíf fjallaði um færslu sem hann skrifaði á Facebook.
Eiginkona Snorra, Nadine Guðrún Yaghi, skrifaði einnig færslu á Facebook þar sem hún segist óánægð með sinn gamla vinnustað og segir ritstjórn Vísis hafa neitað að verða við beiðni hennar um að nota aðra ljósmynd við fréttina.
Nýlega var þó tekin ákvörðun hjá ritstjórn Vísis um að skipta um ljósmynd en í athugasemd sem bætt var við frétt Vísis segist miðillinn ekki hafa haft önnur sjónarmið í huga við myndavalið, en „þau að sýna Snorra í nýju og stærra hlutverki á hans pólitíska ferli“ en „í ljósi þess að umræðan er farin að snúast meira um myndina en efni greinarinnar þá höfum við, með tilliti til hagsmuna barnsins, kosið að skipta um mynd.“
Hér má sjá athugasemd ritstjórnar í heild sinni:
Athugasemd ritstjórnar
Varðandi myndbirtingu á Vísi
Með grein um Snorra Másson sem birtist á Vísi í dag var valin mynd af honum að fagna kjöri sem varaformaður Miðflokksins á nýlegu landsþingi. Á því augnabliki hélt hann á barni sínu undir dynjandi lófataki og var barnið því á öllum myndum Vísis af þessari sigurstundu. Myndin var ekki valin með önnur sjónarmið í huga en þau að sýna Snorra í nýju og stærra hlutverki á hans pólitíska ferli.
Í ljósi þess að umræðan er farin að snúast meira um myndina en efni greinarinnar þá höfum við, með tilliti til hagsmuna barnsins, kosið að skipta um mynd. Skiptir þá engu þótt myndin hafi áður birst í fréttum og Snorri sjálfur deilt henni á samfélagsmiðlum sínum.

Komment