1
Pólitík

„Hreinlegast væri nú fyrir Heiðu að draga sig í hlé“

2
Heimur

Áhyggjur af heilsu Trumps magnast: Marblettir, ruglingur og merki um hnignun

3
Innlent

Maðurinn er fundinn

4
Heimur

Þrír látnir og margir slasaðir eftir harmleiki á Kanarí

5
Heimur

Ný myndbönd stangast á við frásögn yfirvalda af skotárásinni í Minneapolis

6
Innlent

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks

7
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á gjörgæslu

8
Fólk

Hverfishetja selur í Árbænum

9
Innlent

Barn gripið á rúntinum

10
Innlent

Sólveig Anna er trítilóð út í RÚV

Til baka

Rússneskum hjónum með nýfædda tvíbura sparkað úr landi

Lögfræðingur hjónanna segir málið „öfugsnúið“ og „grafalvarlegt“.

Gadzhi
Gadzhi og sonur hansFjölskyldan hefur verið handtekin og verður vísað úr landi á næstunni
Mynd: Aðsend

Til stendur að senda rússneska fjölskyldu frá Íslandi fljótlega, samkvæmt tilkynningu frá No Borders Iceland. Fjölskyldan sótti hér um hæli vegna ofsókna og pyntinga rússneskra yfirvalda á fjölskylduföðurnum. Hjónin eignuðust tvíbura þann 15. september síðastliðinn og áttu fyrir lítinn dreng.

Í dag sótti lögreglan fjölskyldu á flótta frá Rússlandi og færði hana í varðhald á óþekktum stað þar sem hún verður vistuð fram að brottvísun, að því er segir í tilkynningu frá No Borders Iceland. Farsímar fjölskyldunnar hafi verið gerðir upptækir.

Hjónin Mariiam Taimova og Gadzhi Gadzhiev sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 ásamt ungum syni sínum. Þau eiga nú nýfædda tvíbura sem fæddir eru á Íslandi. Þá er Mariiam heilsutæp en hún hefur notast við hjólastól undanfarið. Samtökin telja brottvísunina ólöglega, þar sem börnin hafi engin tengsl við Króatíu sem íslensk stjórnvöld hyggist vísa fjölskyldunni til. Óvíst sé hvort Króatía taki á móti þeim, en hættan á endursendingu til Rússlands er raunveruleg.

Samkvæmt No Borders Iceland sætir fjölskyldan ofsóknum í Rússlandi. Þar hafi Gadzhi, sem er stjórnarandstæðingur og pólitískur aðgerðasinni, verið handtekinn af sérsveitarmönnum árið 2016, dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2017 og sendur í fangabúðir í Síberíu þar sem hann varð fyrir „hrottalegum pyntingum, líkamlegum, kynferðislegum og andlegum“. Til séu myndir og myndbönd af áverkum hans.

Eftir að Gadzhi losnaði úr fangelsi hafi hann verið undir stöðugu eftirliti stjórnvalda í heimabæ sínum Makhachkala. Hann hafi þurft að tilkynna sig reglulega til lögreglu, ekki mátt yfirgefa heimabæinn né vera með vegabréf. Hann og Mariiam flúðu Rússland saman í september 2022, aðeins þremur dögum áður en tilkynnt var um almenna herkvaðningu í stríðið gegn Úkraínu.

Samkvæmt lögfræðingi fjölskyldunnar, Arndísi Ósk Magnúsdóttur, eru Króatar duglegir að senda flóttafólk frá Rússlandi, aftur til síns heima. Hér má sjá tölfræði um slíkt en af nýjustu tölfræðinni sem er til staðar vegna verndarveitinga í Króatíu (2023) má sjá að aðeins 23 rússneskir ríkisborgarar hlutu alþjóðlega vernd þar í landi á árinu. Einn hlaut viðbótarvernd.

Í samtali við Mannlíf segir hún málið grafalvarlegt og að hið öfugsnúna í málinu sé sú staðreynd að aðrir fjölskyldumeðlimir hjónanna, það er að segja móðir, systir og bróðir, verða eftir á Íslandi en þau eru með alþjóðlega vernd á grundvelli ofsókna sem Gadzhi varð fyrir í Rússlandi. „Svo öfugsnúið er málið.“ Segir hún ástæðuna vera þá að Dyflinnarreglugerðinni hafi verið beitt gegn hjónunum og því verði þau send til Króatíu.

„En svona á að sjálfsögðu ekki að beita Dyflinnarreglugerðinni,“ segir Arndís við Mannlíf.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Lögreglan staðfestir að líkið sé af hinni 18 ára Hönnu
Heimur

Lögreglan staðfestir að líkið sé af hinni 18 ára Hönnu

Málið hefur vakið mikinn óhug í Svíþjóð en Hanna hvarf þann 6. janúar.
Birti sláandi myndband af akstri langferðabíls
Myndband
Landið

Birti sláandi myndband af akstri langferðabíls

Sjaldséðir dauðarokkarar snúa aftur
Menning

Sjaldséðir dauðarokkarar snúa aftur

Þrír látnir og margir slasaðir eftir harmleiki á Kanarí
Heimur

Þrír látnir og margir slasaðir eftir harmleiki á Kanarí

Finneas rífur yfirvöld í Bandaríkjunum í sig eftir morðið á Petti
Heimur

Finneas rífur yfirvöld í Bandaríkjunum í sig eftir morðið á Petti

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks
Innlent

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks

Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega
Innlent

Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega

Bæjarstjórinn þorði ekki í viðtal vegna klúðurs í Kársnesskóla
Pólitík

Bæjarstjórinn þorði ekki í viðtal vegna klúðurs í Kársnesskóla

Donald Trump tjáir sig um skotárásina í Minneapolis
Heimur

Donald Trump tjáir sig um skotárásina í Minneapolis

Einn liggur þungt haldinn á gjörgæslu
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á gjörgæslu

Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins ekki lengur atvinnulaus
Innlent

Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins ekki lengur atvinnulaus

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður
Innlent

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður

Innlent

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks
Innlent

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks

Maðurinn var eitt sinn skráður sem formaður hjá félagi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega
Innlent

Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega

Einn liggur þungt haldinn á gjörgæslu
Innlent

Einn liggur þungt haldinn á gjörgæslu

Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins ekki lengur atvinnulaus
Innlent

Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins ekki lengur atvinnulaus

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður
Innlent

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður

Loka auglýsingu