1
Pólitík

Ragna farin í veikindaleyfi frá Alþingi

2
Fólk

Snotur íbúð rokkstjörnu í Fossvogi föl fyrir slikk

3
Innlent

Eldar réðst á mann á Hverfisgötu

4
Fólk

Borgarstjórabíll til sölu

5
Landið

Hestaleigu lokað vegna vanrækslu

6
Minning

Margrét Hauksdóttir er fallin frá

7
Heimur

Macron sleginn í andlitið af eiginkonu sinni

8
Innlent

Ókunnugur maður elti Freyju um miðbæinn

9
Peningar

„Seinustu vikur hafa verið erfiðar“

10
Minning

Hafsteinn Jóhannsson er fallinn frá

Til baka

Sævar segir já­kvætt að sjá vaxta­gjöld­in loks­ins lækka

Veltu­fé frá rekstri OR nam tæpum 10 millj­örðum króna.

Sævar Freyr Þráinsson
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri OR.Sævar Freyr Þráinsson.
Mynd: Sævar Freyr Þráinsson.

Orku­veita Reykja­vík­ur skilaði 4,5 millj­arða króna hagnaði á fyrsta árs­fjórðungi árs­ins 2025 - sam­kvæmt nýbirt­um sam­stæðureikn­ingi.

Er þetta veru­leg hækk­un frá sama tíma­bili í fyrra er hagnaður­inn nam 2,9 millj­örðum króna.

Þá er komið á daginn að rekstr­ar­tekj­ur OR juk­ust um 6 prósent á milli ára; námu alls 18,8 millj­örðum króna. Einnig lækkuðu rekstr­ar­gjöld um 7 prósent og dró úr kostnaði við orku­kaup og flutn­ing sem fór úr 2,1 millj­arði niður í 1,5 millj­arð króna.

Rekstr­ar­hagnaður tíma­bils­ins var um 12,5 millj­arðar og rekstr­ar­hagnaður eft­ir af­skrift­ir (EBIT) um það bil 8,2 millj­arðar.

Áfram voru þó fjár­muna­gjöld há; sam­tals um 3 millj­arðar, en lækkuðu þó frá sama tíma í fyrra. Veltu­fé frá rekstri nam tæpum 10 millj­örðum króna, sem er 1,4 millj­örðum meira en í fyrra. Hand­bært fé OR í lok mars var 22,3 millj­arðar.

Vert er að geta þess að dótt­ur­fé­lagið Orka nátt­úr­unn­ar fékk 450 millj­óna end­ur­greiðslu frá Landsneti vegna leiðrétt­ing­ar á gjald­skrá.

Fjár­fest­ing­ar héld­ust svipaðar milli ára og námu 6,4 millj­örðum króna, einkum hjá Veit­um í tengsl­um við efl­ingu hita­veitna. Sam­stæðan sam­an­stend­ur af OR móður­fé­lag­inu, Veit­um, Orku nátt­úr­unn­ar, Ljós­leiðar­an­um og Car­bfix. Eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæðunn­ar var 51,8% í lok tíma­bils­ins.

Segir Sæv­ar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri OR, niður­stöðuna sýna styrk fyr­ir­tæk­is­ins:

„Af­kom­an er góð og það er já­kvætt að sjá vaxta­gjöld­in loks­ins lækka.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Vestmannaeyjar
Grein

Starfsmaður leikskóla í Vestmannaeyjum sló til barns

TikTok stjarnan
Heimur

TikTok-stjarnan látin, aðeins 19 ára að aldri

Ólafur Ólafsson körfubolti Grindavík
Fólk

Hefur ekki áhuga á að leigja gamla húsið sitt

Helga Vala Helgadóttir
Innlent

Helga Vala leiðréttir frétt RÚV

Freyja Sofie
Myndband
Innlent

Ókunnugur maður elti Freyju um miðbæinn

Þorgerður Katrín
Pólitík

Uppreisn gerir Viðreisn erfitt fyrir

||
Minning

Tómas Búi Böðvarsson er látinn

Loka auglýsingu