
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins fór mikinn í Silfrinu á RÚV í gærkvöldi þar sem rætt var um Evrópusambandið og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um inngöngu í sambandið. Sigmundur var ekki eini gesturinn í settinu en fulltrúar allra flokka voru þar einnig. Nokkuð fát kom á Sigmund þegar þáttastjórnandinn, Bergsteinn Sigurðsson spurði hann út í tengsl Miðflokksins við MAGA-þingmenn Repúblíkanaflokksins í Bandaríkjunum, sem Heimildin uppljóstraði um í nýjasta tölublaði sínu.
Aðdragandinn að spurningum þáttastjórnandans var sá að Sigmundur Davíð beindi orðum sínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra sem sat við hlið hans í Silfrinu. „Það er verið að villa um fyrir fólki og svo skreyta menn sig með svona frösum eins og „Við treystum þjóðinni“, þegar allt sem þið hafið gert til þessa bendir til þess gagnstæða. Hvers vegna varstu að plotta með samherjum þínum í Brussell, mánuð eftir mánuð eftir mánuð ...“ Þarna greip Þorgerður Katrín og spurði hann hvað hann væri að saka sig um.
Eftir nokkurt karp milli þeirra spyr Bergsveinn Sigmund Davíð: „Sigmundur, má ég spyrja að einu. Hvað með þessa fréttaskýringu frá Heimildinni fyrir helgi um að Miðflokkurinn væri í einhverju samkurli með einhverri MAGA-hreyfingu og væri að sækja fundi með þeim í Gautaborg, er eitthvað til í því?“
Talsvert fát kom á Sigmund en hann byrjaði á að tala um „upplýsingaóreiðu“ Þorgerðar Katrínar og að hún hafi einmitt talað um þetta á þinginu en svo svaraði hann spurningunni:
„Þetta er einhver tóm steypa. Ég reyndar ekki búinn að lesa þetta en það er búið að fara yfir innihaldið með mér að einhverju leyti. Ég hef ekki tíma til að lesa svona þvætting. En þetta mun vera um það að einhverjir amerískir Repúblikanar hafi fengið styrki til þess, áhrifamenn í þeim flokki hafi fengið styrki til að koma að hitta mig. Ég veit ekki hvaða menn þetta eru.“
Þorgerður Katrín skaut þá inn í: „Þannig að engin tengsl við MAGA?“
Bergsteinn spurði Sigmund: „Þú varst ekki á þessum fundi í Gautaborg í ágúst í fyrra þar sem þú hittir starfsmenn þingmanna Repúblikanaflokksins?“
Sigmundur svaraði: „Ég var á fundi í Gautaborg en veit ekki hvort einhverjir sem ég hitti voru starfsmenn Repúblikanaflokksins, Demókrataflokksins eða annarra.“
Bergsteinn spurði: „En ertu í einhverju samstarfi við þessar hreyfingar?“
Sigmundur svaraði: „Nei, þetta er einhver þvættingur! Fullkominn þvættingur og ...“
Þorgerður Katrín skaut þá inn í: „Engin tengsl? Það er gott að heyra það.“
Sigmundur Davíð hló þá og hélt áfram: „Og eins og svo margt annað hérna. Og eins það að við höfum verið send, Miðflokksþingmenn á námskeið hjá einhverju MAGA-hópi til þess að læra einhverja taktík. En þetta sýnir upplýsingaóreiðuna sem er hér ríkjandi og hversu litlu máli tengsl við raunveruleikann skipta og hér er stöðugt verið að halda fram einhverjum hlutum sem að við þurfum svo að vera upptekin við að leiðrétta.“

Komment