1
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

2
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

3
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

4
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

5
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

6
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

7
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

8
Innlent

Landasali á ferð

9
Menning

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra

Til baka

Sósíalistaflokkurinn vill tilnefna Francescu Albanese til friðarverðlauna Nóbels

Núverandi ríkisstjórn Íslands, líkt og síðasta ríkisstjórn, reynist samsek og eykur þá samsekt með hverjum degi sem hún beitir sér ekki af fullum þunga gegn þjóðarmorðinu og svívirðilegum brotum á alþjóðalögum og mannréttindum

Francesca Albanese
Francesca AlbaneseAlbanese hefur staðið þétt við bakið á Palestínumönnum frá upphafi þjóðarmorðsins
Mynd: JURE MAKOVEC / AFP

Sósíalistaflokkur Íslands skorar á ríkisstjórnina og þingmenn Alþingis að tilnefna Francescu Albanese, sérstakan talsmann Sameinuðu þjóðanna um málefni Palestínu, til Friðarverðlauna Nóbels.

Í yfirlýsingu flokksins segir að Albanese hafi sýnt hugrekki, heiðarleika og staðfestu í baráttu sinni fyrir réttindum Palestínumanna á alþjóðavettvangi, á sama tíma og „þjóðarmorð Ísraelsríkis heldur áfram óáreitt“. Þar er bent á áframhaldandi landtöku Ísraels, stækkun ólöglegra byggða og fjöldamorð á óbreyttum borgurum.

Flokkurinn segir að með því að tala af hreinskilni gegn hernámi, landráni og ofbeldi hafi Albanese orðið fyrir pólitískum árásum, viðskiptaþvingunum og fjölmiðlaáróðri, einkum frá Bandaríkjunum, en staðið óbifanleg með réttlæti og mannréttindum.

Í yfirlýsingunni er jafnframt gagnrýnt að mörg ríki Evrópusambandsins, sem og íslensk stjórnvöld, séu samsek í glæpum gegn mannkyni með aðgerðaleysi, undirgefni eða beinum stuðningi við Ísrael.

„Það er skylda okkar að styðja slíkt hugrekki,“ segir í ályktun flokksins, sem leggur áherslu á að barátta Albanese sé ekki aðeins fyrir Palestínu heldur einnig fyrir grunn­gildum mannkynsins: samúð, réttlæti og virðingu fyrir lífi allra.

Hér má sjá ályktun flokksins í heild sinni:

Sósíalistaflokkur Íslands hvetur ríkisstjórnina og meðlimi Alþingis til að tilnefna Francescu Albanese, sérstakan talsmann Sameinuðu þjóðanna um málefni Palestínu, til Friðarverðlauna Nóbels. Francesca Albanese hefur af hugrekki, heiðarleika og staðfestu verið rödd palestínsku þjóðarinnar á alþjóðavettvangi á sama tíma og þjóðarmorð Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni heldur áfram óáreitt. Landrán Ísraels í Palestínu heldur áfram, ólöglegar byggðir stækka dag frá degi, og fjöldamorð á börnum, konum og öldruðum eru daglegt brauð.

Þegar heimsbyggðin stendur frammi fyrir slíkum glæpum gegn mannkyninu er lágmark að heiðra þá sem hafa kjark til að segja sannleikann og verja rétt fórnarlambanna. Francesca Albanese er ein af fáum alþjóðlegum embættismönnum sem hefur ekki látið þagga niður í sér, heldur talað af hreinskilni gegn landráni, hernámi og þjóðarmorði. Fyrir það hefur hún orðið skotmark stöðugra árása: viðskiptaþvingana, rangfærslna og pólitískra ofsókna – einkum af hálfu Bandaríkjastjórnar – auk fjölmiðlaárása sem miða að því að grafa undan trúverðugleika hennar. Þrátt fyrir þetta stendur hún óbifanleg með réttlæti.

Mörg ríki Evrópusambandsins eru ekki aðeins meðvirk heldur beita sér af fullum þunga fyrir áframhaldandi þjóðarmorði með því að vopna og fjármagna landránsnýlenduna Ísrael. Samsekt þeirra gengur langt út fyrir þögnina: þau eru sjálf gerendur í þessum heimssögulega glæp gegn mannkyninu.

Núverandi ríkisstjórn Íslands, líkt og síðasta ríkisstjórn, reynist samsek og eykur þá samsekt með hverjum degi sem hún beitir sér ekki af fullum þunga gegn þjóðarmorðinu og svívirðilegum brotum á alþjóðalögum og mannréttindum. Með aðgerðaleysi og undirgefni við sömu ríki sem halda uppi þjóðarmorðinu gerir hún Ísland samsekt þessum glæpum.

Saga okkar minnir okkur á hve mikilvægt það er að standa með sannleikanum og með þeim sem þora að tjá hann þegar mest á reynir. Árið 1934 var rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson dæmdur í Hæstarétti Íslands fyrir að segja að Hitler væri sadisti. Í dag sjáum við hliðstæður þegar þeir sem gagnrýna Ísrael og vestræna samsekt við þjóðarmorð eru ofsóttir.

Francesca Albanese hefur þó staðið óhrædd upp og tjáð sannleikann, þrátt fyrir stöðugar árásir og tilraunir til að þagga niður í henni. Það er skylda okkar að styðja slíkt hugrekki og veita þeim sem þora að segja sannleikann þann heiður og þann styrk sem Friðarverðlaun Nóbels geta falið í sér.

Sósíalistaflokkur Íslands skorar því á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að tilnefna Francescu Albanese til Friðarverðlauna Nóbels fyrir ómetanlegt starf í þágu friðar, réttlætis og mannréttinda palestínsku þjóðarinnar. Baráttu sem er ekki aðeins fyrir Palestínu heldur fyrir grundvallargildum mennskunnar, fyrir samúð, réttlæti og heimi þar sem líf alls fólks er virt. Langt er í land hvað það varðar að alþjóðasamfélagið endurspegli þau gildi raunverulega, en Francesca Albanese stendur sem skýrt leiðarljós í myrkrinu.

Sósíalistaflokkur Íslands

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

TikTok-stjarna líflátin opinberlega
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

Var rænt í miðju streymi og tekin færð inn á torg.
Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi
Myndir
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

Þrír látnir í brimi við Tenerife
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra
Menning

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Selja einstakt einbýli á Álftanesi
Myndir
Fólk

Selja einstakt einbýli á Álftanesi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma
Menning

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma

Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Loka auglýsingu