
Faðir drengs sem myrti þrjár ungar stúlkur í hnífaárás sagði fyrir bresku rannsóknarnefndinni í dag að sonur hans, sem væri ofbeldisfullur, hefði hótað að drepa hann.
Axel Rudakubana var dæmdur til lífstíðarfangelsi í janúar fyrir hnífaárásina í fyrra á dansnámskeiði með Taylor Swift-þema í norðvesturhluta Englands, í Southport, þar sem hann myrti þrjár stúlkur.
Morðin urðu kveikjan að verstu óeirðum í mörg ár í Bretlandi.
Alphonse Rudakubana sagði að sonur hans, sem var 17 ára gamall þá, hafi glímt við ofbeldisfull skapofsaköst sem gerðust stundum tvisvar á dag.
„Hann barði mig,“ sagði Rudakubana og rifjaði upp eitt atvik þegar sonur hans hellti olíu yfir höfuð hans.
Rudakubana sagðist síðan hafa verið ógnað á hrottalegan hátt.
„Ef þið rekið mig héðan, úr þessu húsi, gæti það tekið einn dag, það gæti tekið viku, kannski mánuð, kannski ár en ég mun drepa þig og trúðu mér, ég mun drepa þig,“ hefur hann eftir syni sínum.
Rudakubana, sem flúði Rúanda til að setjast að í Bretlandi eftir að hafa lifað af þjóðarmorðið árið 1994, sagði að sonur hans hefði breyst þegar hann var rekinn úr skóla árið 2019 eftir að hafa játað að hafa borið hníf.
Hann sagði að þegar Axel byrjaði í skóla hafi hann verið „fallegur strákur“.
„Þegar þeir sendu hann aftur til okkar var hann brotinn, dapur, þjáður, breyttur algjörlega breyttur,“ bætti hann við.
„Ég ber að einhverju leyti ábyrgð á þessu,“ sagði hann að lokum.
Komment