1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

6
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

7
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

8
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

9
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

10
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Til baka

Sextán ára stúlka á Gaza lætur pensilinn tala fyrir börnin

Yara Youssef Abu Kweik hellir tilfinningum sínum í listina

list
Verk eftir YöruYara notar listina til að takast á við sorgina
Mynd: YouTube-skjáskot

Yara Youssef Abu Kweik, sextán ára stúlka frá Gaza, vinnur úr tilfinningum sínum með því að mála senur sem endurspegla þjáningar daglegs lífs hennar.

Fyrir börn Gaza, sem eru bæði fórnarlömb og vitni að ólýsanlegu ofbeldi, hefur meira en tveggja ára stríði Ísraels gegn svæðinu, sem lýst er sem þjóðarmorði, skilið eftir djúp sár, bæði líkamleg og andleg, sem munu vara lengi eftir að átökunum lýkur.

Yara
YaraListin á hug hennar allan
Mynd: YouTube-skjáskot

Tugir þúsunda barna hafa misst foreldra og systkini, mörg hafa orðið fyrir líkamlegum meiðslum sem breyta lífi þeirra varanlega, og önnur bera sálræn áföll eftir að hafa orðið vitni að dauða jafnaldra sinna. Þau hafa verið rekin að heiman aftur og aftur, misst heimili sín og menntun þeirra hefur stöðvast algjörlega.

Vegna skorts á úrræðum til að vinna úr sorg sinni hafa mörg ungmenni á Gaza leitað í skapandi tjáningu til að tjá sársauka sinn.

Yara Youssef Abu Kweik hellir tilfinningum sínum í listina.

„Ég teiknaði áður venjulega, sjálfsprottna og litrík verk,“ sagði hún í viðtali við Al Jazeera.

„En þegar stríðið skall á fann ég að ég varð að sýna heiminum hvernig við Palestínumenn á Gaza lifum.“

list3
Mynd: YouTube-skjáskot

Hún notar teikningar sínar og málverk til að sýna það sem hún hefur séð og upplifað á undanförnum tveimur árum.

„Ég málaði mynd af börnum sem berjast við að ná handfylli af vatni. Hungursneyðin sem við höfum lifað við í áraraðir, lífið í tjöldum, allt þetta hefur markað djúp spor í sál mína.“

Þó að teikningarnar hjálpi henni að létta á tilfinningum sínum, segist hún einnig fá „endurlit“ (e. flashback) þegar hún teiknar upp þessar senur.

list2
Mynd: YouTube-skjáskot

Sálfræðingar hafa varað við því að yfir 80 prósent barna á Gaza sýni nú einkenni alvarlegra áfalla, þar á meðal höfuðverk, magaverk, beinverki, hárlos, skjallbletti og veikt ónæmiskerfi.

„Í annað sinn sem ég var rekin að heiman byrjaði ég að mála það sem hefur breytt okkur öllum,“ segir hún.

„Þegar ég var svipt heimilinu í annað sinn fann ég þörf til að setja sársaukann á blað. Ég málaði börn og foreldra þeirra sofandi á götunni, berskjaldaða fyrir skothríð, sprengjum og náttúruöflunum.“

list5
Mynd: YouTube-skjáskot

Jafnvel áður en stríð Ísraels gegn Gaza hófst glímdu börn þar við alvarleg andleg vandamál. Samkvæmt skýrslu Save the Children frá árinu 2022 bjuggu fjögur af hverjum fimm börnum á Gaza við depurð, sorg og ótta, og meira en helmingur þeirra glímdi við sjálfsvígshugsanir.

Samkvæmt mati UNICEF hafa meira en 64 þúsund börn verið drepin eða særst á Gaza frá því að stríðið hófst eftir árásir Hamas á suðurhluta Ísraels 7. október 2023. Að minnsta kosti 68.858 manns hafa látið lífið og 170.664 særst í átökunum en talan gæti verið mun hærri.

Vopnahléið sem Bandaríkin miðluðu milli Ísraels og Hamas, sem tók gildi 10. október, hefur veitt litla hvíld. Endurteknar loftárásir Ísraels og strangar takmarkanir á flutningi matvæla, lyfja og annarrar aðstoðar hafa haldið hörmungunum gangandi.

list4
Mynd: YouTube-skjáskot

Samkvæmt Heilbrigðisráðuneyti Gaza hafa meira en 200 manns verið drepnir og yfir 500 særst í árásum Ísraels eftir að vopnahléið tók gildi.

Þrátt fyrir sársauka sinn og þeirra sem hún lifir með, er Yara Youssef Abu Kweik staðráðin í að bæta listfærni sína og senda skilaboð sín út í heiminn.

Skilaboðin eru einföld og skýr:

„Ég tala fyrir hönd allra palestínskra barna á Gaza-svæðinu, og fyrir þeirra hönd segi ég: Nú er nóg komið. Við viljum lifa.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

„Lítill gaur í bumbu“
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Hitler Mussolini Simeón Flores, 45 ára, sigraði í sveitarstjórnarkosningum í litlu héraði í Andesfjöllum í Perú með aðeins 25 atkvæða mun. Hann bauð sig fram fyrir mið-vinstri flokkinn Ahora Nación.
Farþegaþotur skullu saman
Myndband
Heimur

Farþegaþotur skullu saman

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar
Heimur

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi
Heimur

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi

Loka auglýsingu