1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

3
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

4
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

5
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

6
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

7
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

8
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

9
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

10
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Til baka

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Erika ýtti við Cörlu þegar úrslitin voru ljós og hrópaði „aldrei!“

Erika nótt
Carla og ErikaErika var afar ósátt við úrslitin
Mynd: Skjáskot

Carla Jade hélt Misfits-meistaratitli sínum eftir nauman sigur á íslensku hnefaleikakonunni Eriku Nótt Einarsdóttur í Lundúnum í kvöld. Hin 19 ára Erika byrjaði betur og vann fyrstu tvær umferðirnar að mati lýsenda bardagans, en Carla sótti í sig veðrið og hafði betur í síðustu þremur. Erika var afar ósátt við niðurstöðuna og ýtti við Cörlu þegar hún fagnaði sigrinum.

Erika Nótt Einarsdóttir þurfti að sætta sig við naumt tap í frumraun sinni hjá Misfits Boxing þegar hún mætti ríkjandi léttvigtarmeistaranum Carla Jade í Copper Box Arena í Lundúnum.

Bardaginn var jafn og spennandi. Erika byrjaði af krafti og hafði betur í fyrstu tveimur umferðunum, en Carla náði að snúa taflinu við og var sterkari í síðustu þremur. Það dugði henni til að tryggja sér nauman sigur og halda meistaratitlinum.

Ljóst var að Erika var ekki sátt við niðurstöðuna. Þegar Carla fagnaði sigrinum og titlinum hrópaði Erika „aldrei!“ og ýtti við henni. Fyrir bardagann höfðu þær báðar látið stór orð falla en Carla kastaði meðal annars dós í átt að Eriku á blaðamannafundi í fyrradag.

Viðbrögð Eriku settu enn meiri dramatík í lok bardagans, sem hafði verið jafn og tvísýnn allt til loka.

Lengi beðið eftir tækifærinu

Erika hefur lengi stefnt að því að komast í atvinnubardaga og tryggði sér sæti hjá Misfits Boxing eftir að hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum.

Hún varð Norðurlandameistari í hnefaleikum árið 2024, fyrst Íslendinga, og tilkynnti skömmu síðar að hún hygðist halda út í atvinnumennskuna eftir sigur á Icebox.

Andstæðingur hennar, Carla Jade, er 37 ára gömul og hefur verið viðloðandi bardagasenuna um árabil. Hún starfaði áður sem hringstelpa og stofnaði síðar fyrirtækið Ring Girl Promotion. Hún er fjögurra barna móðir og hafði fyrir bardagann varið Misfits-meistaratitil sinn í léttvigt þrisvar sinnum.

Þrátt fyrir tapið sýndi Erika að hún getur veitt reynslumiklum andstæðingum harða keppni. Naumur sigur Cörlu og viðbrögð Eriku eftir að úrslitin lágu fyrir munu án efa vekja áfram umræðu meðal fylgjenda beggja keppenda.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega
Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega

Loka auglýsingu