1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

„Þegar leiknum lýkur er erfitt að horfa fram hjá því að ef niðurstöðurnar um sekt verða staðfestar í janúar eða febrúar verður Manchester City ekki í þeirri stöðu sem félagið er í núna.“

Gary Neville
Gary NevilleNeville finnst óþægilegt að lýsa Manchester City leikjum
Mynd: OLI SCARFF / AFP

Gary Neville hefur óskað eftir því að Sky Sports taki hann af útsendingum frá leikjum Manchester City þar til endanleg niðurstaða fæst í máli félagsins vegna meintra brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Neville lýsti sigri City á Liverpool á Anfield en átti erfitt með að hrósa liðinu, þar sem óvíst er hvort úrslitin muni að lokum standa. City var á dögunum fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum en félagið hefur nú áfrýjað dómnum. Þrír lykilmenn í liði Liverpool léku ekki í leiknum vegna meiðsla en það voru þeir Cody Gakpo, Alexander Isak og Dominik Szoboszlai.

Manchester City lék af öryggi þrátt fyrir fjandsamlegar móttökur á Anfield og náði að þagga niður í vængbrotnum heimamönnum, með hjálp dómarans að sumra mati. Þegar Ryan Gravenberch fékk seinna gulaspjaldið og í kjölfarið rautt spjald um miðjan fyrri hálfleik nýtti City sér liðsmuninn án tafar.

Erling Haaland, Jeremy Doku og Rayan Cherki skoruðu allir á 13 mínútna kafla og tryggðu City sigur. Það var þó Elliot Anderson sem vakti mesta athygli Neville.

Hann hélt aftur af hrósinu vegna málsins sem snýr að fjármálareglum félagsins og sagðist vilja losna undan því að lýsa leikjum City þar til niðurstaða lægi fyrir.

„Þetta er fyrsti leikur Manchester City sem ég lýsi síðan ákærurnar eða niðurstöðurnar um sekt voru kynntar fyrir nokkrum vikum,“ sagði Neville á Sky Sports.

„Við vorum að taka upp hlaðvarpið á þeim tíma og sögðum að ef hægt væri að taka mig af leikjum Manchester City næstu mánuðina, þar til niðurstaða fengist, yrði ég afar ánægður.

Það er mjög erfitt að vinna á Anfield. Við ættum að hrósa City fyrir frammistöðuna án nokkurra fyrirvara, en maður hefur þetta mál alltaf í huga.

Þeir stóðu sig frábærlega í dag. Þeir réðu lögum og lofum síðustu 20 mínúturnar, eftir rauða spjaldið. Þeir héldu vel saman og mér fannst leikmenn á borð við [Gianluigi] Donnarumma, [Ruben] Dias og Anderson standa sig sérstaklega vel í fyrri hálfleik. Þeir stóðu þétt saman sem lið.“

Neville sagði að erfitt væri að líta fram hjá þeim möguleika að niðurstaða málsins gæti breytt stöðu Manchester City verulega.

„Þegar leiknum lýkur er erfitt að horfa fram hjá því að ef niðurstöðurnar um sekt verða staðfestar í janúar eða febrúar verður Manchester City ekki í þeirri stöðu sem félagið er í núna. Þá munu alvarlegar efasemdir hvíla yfir allri úrvalsdeildinni. Það er ekki gott fyrir deildina og þetta ástand gæti varað næstu mánuði. Það er mjög slæmt fyrir úrvalsdeildina.“

Áfrýjunarferlið er hafið en gæti liðið töluverður tími þar til endanleg niðurstaða fæst. Jafnframt stendur yfir málsmeðferð um mögulegar refsingar og er búist við að niðurstaða í þeim þætti liggi fyrir fyrst.

Þrátt fyrir að Neville ætti erfitt með að hrósa City lögðu bæði hann og Jamie Carragher áherslu á að leikmenn liðsins ættu ekki skilið þá fjandsamlegu framkomu sem þeir hafa mátt þola.

„Vandinn fyrir starfsfólk Manchester City, leikmennina og stuðningsmennina er að þau bera enga ábyrgð á þessu máli. Þau þurfa að bera þann stimpil og það orðsporstjón sem fylgir því, þótt þau eigi enga sök á því. Samt þurfa þau að takast á við þetta á vellinum og í stúkunni, viku eftir viku,“ sagði Neville.

Carragher tók undir orð hans.

„Leikmennirnir á vellinum hafa þurft að þola gagnrýnina. Öll athyglin beinist að þessum leik og maður horfir næstum ósjálfrátt upp í heiðursstúkuna og hugsar að það sé fólkið þar sem ætti að vera inni á vellinum og taka á móti allri gagnrýninni.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega
Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega

Loka auglýsingu