
Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi segir allan undirbúning að kirkjubyggingu við Mýrargötu 21–23 vera lokið og fjármögnun liggja fyrir. Söfnuðurinn óskar eftir samtali við Reykjavíkurborg eftir að borgarráð ákvað að afturkalla lóðaúthlutunina.
Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi harmar ákvörðun borgarráðs frá 8. október um að afturkalla lóðaúthlutun að Mýrargötu 21–23. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla í morgun segir söfnuðurinn að ákvörðunin hafi komið á óvart, enda hafi verið regluleg samskipti við Reykjavíkurborg um verkefnið á undanförnum árum.
Að sögn safnaðarins er undirbúningi kirkjubyggingarinnar lokið og fjármögnun liggur fyrir. Söfnuðurinn segir að einungis byggingarleyfi vanti til að hægt sé að hefja framkvæmdir.
„Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun,“ segir í yfirlýsingunni.
Teikningar samþykktar í september
Í yfirlýsingunni kemur fram að söfnuðurinn hafi um árabil unnið að hönnun kirkjunnar og gerð nauðsynlegra verkfræðiteikninga. Samkvæmt honum voru síðustu teikningarnar samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september síðastliðinn og umsóknin hafi verið tekin til afgreiðslu.
Söfnuðurinn segir fyrri tafir ekki hafa stafað af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn hafi stöðvað vinnuna um langt skeið, auk þess sem hönnuninni hafi verið breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu. Upphafleg stærð byggingarinnar hafi jafnframt verið minnkuð.
Þá hafi Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.
Segja lóðina ekki hafa verið yfirgefna
Söfnuðurinn hafnar því að lóðin hafi verið yfirgefin. Hún hafi verið blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Samkvæmt yfirlýsingunni koma meðlimir safnaðarins saman á lóðinni á hverjum sunnudegi til bænahalds í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Söfnuðurinn segir lóðina þegar hafa sérstaka trúarlega merkingu fyrir marga.
Rétttrúnaðarsöfnuðurinn þjónar fólki af fjölbreyttum uppruna og segir yfir þúsund trúaða sækja hann á hverju ári. Þar séu meðal annars Íslendingar, Úkraínumenn, Rússar, Serbar, Grikkir, Rúmenar og fólk frá ýmsum öðrum löndum.
Söfnuðurinn hefur lengi stefnt að því að reisa eigin kirkju í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að byggingin eigi ekki aðeins að vera bænahús heldur einnig opinn samkomustaður fólks af ólíkum uppruna og falleg viðbót við borgarmynd Vesturbæjarins.
Óskar eftir samtali við yfirvöld
Söfnuðurinn telur að fara eigi varlega í málið og að mögulegt sé að grípa til vægari úrræða en að afturkalla lóðina.
Hann óskar eftir opnu samtali við fulltrúa Reykjavíkurborgar, önnur yfirvöld og alla stjórnmálaflokka með það að markmiði að finna lausn sem geri kleift að hrinda verkefninu í framkvæmd.
Í yfirlýsingunni er einnig boðið til samtals um hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem þegar liggja fyrir. Borgarstjóra, forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka er jafnframt boðið að sækja sunnudagsguðsþjónustu safnaðarins að Öldugötu 44 í Vesturbænum klukkan 10.
Yfirlýsinguna undirritar Timur Zolotuskiy, sóknarprestur Rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi.
Yfirlýsing vegna afturköllunar lóðarinnar að Mýrargötu 21–23
Reykjavík, 10. október 2026
Um árabil hefur rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi tekið á móti fólki frá tugum þjóða: Búlgörum, Íslendingum, Rússum, Úkraínumönnum, Serbum, Georgíumönnum, Rúmenum, Grikkjum, Egyptum, Eþíópíumönnum, Hvít-Rússum, Englendingum, Bandaríkjamönnum og mörgum öðrum. Á hverju ári sækja yfir þúsund trúaðir söfnuðinn. Rétttrúnaðurinn er andleg leið sem stendur öllum opin sem leita samfélags, friðar og samkenndar.
Söfnuðurinn harmar ákvörðun borgarráðs frá 8. október um að afturkalla lóðaúthlutun safnaðarins að Mýrargötu 21–23. Á undanförnum árum hefur söfnuðurinn átt í virkum og reglubundnum samskiptum við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og viðkomandi svið borgarinnar vegna framkvæmdanna.
Við áttum því ekki von á þessari niðurstöðu og ákvörðunin kom okkur á óvart. Söfnuðurinn hefur um langt árabil verið hluti af íslensku samfélagi og við erum þakklát fyrir þann stuðning og velvilja sem við höfum notið hjá Reykjavíkurborg og borgarbúum.
Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin. Hún var blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni. Á hverjum sunnudegi biðjum við saman á lóðinni, í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Í hugum trúaðra er lóðin þegar heilagur staður sem á sérstakan stað í hjörtum margra.
Um árabil hefur söfnuðurinn unnið að undirbúningi kirkjubyggingar á lóðinni, þar á meðal að hönnun hússins og öllum nauðsynlegum verkfræðiteikningum. Þær síðustu voru samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september 2026, fyrir einum mánuði síðan. Allri nauðsynlegri vinnu er lokið og umsóknin hefur verið tekin til afgreiðslu.
Fyrri tafir stöfuðu ekki af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn stöðvaði verkið um langt skeið. Hönnuninni var einnig breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu og upphafleg stærð byggingarinnar var minnkuð. Auk þess hefur Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.
Söfnuðurinn þjónar fjölda trúaðra á Íslandi af ólíkum uppruna, þar á meðal íslensku rétttrúnaðarfólki, sem hafa lengi beðið eftir eigin kirkju í Reykjavík. Kirkjan á að verða meira en bænahús. Hún á að vera opinn staður þar sem fólk af ólíkum uppruna getur komið saman, og falleg viðbót við borgarmyndina í Vesturbænum.
Byggingin er hönnuð á grunni fornra norrænna hefða og hefða austrænnar kristni. Við byggingu hennar er fylgt meginreglum sjálfbærrar mannvirkjagerðar og hún uppfyllir kröfur um lífsferilsgreiningu (LCA).
Rétttrúnaðurinn er fyrst og fremst leið samfélags. Hann er sá lífsmáti að lifa í tengslum við allar aðrar manneskjur og allt sköpunarverkið. Hann er leið fyrir alla sem þrá líf í samkennd, friði og gagnkvæmri umhyggju. Kirkjan er til þess að minna okkur á að manneskjan er ekki ein, að við tilheyrum öll einu samfélagi, samfélagi allra manna, og að tilgang lífsins sé að finna í tengslum, við Guð og hvert við annað. Við hverja sunnudagsmessu er Faðirvorið beðið á að minnsta kosti tólf tungumálum.
Borgin óskaði eftir tímaáætlun fyrir næsta áfanga. Söfnuðurinn svaraði því til að allri undirbúningsvinnu væri lokið, að það eina sem vantaði væri byggingarleyfið og að við hefðum því uppfyllt okkar hluta.
Við erum tilbúin að hefjast handa og fjármögnun liggur fyrir. Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun.
Við teljum að yfirvöld eigi að fara með þetta mál af mikilli varfærni og að vægari úrræði séu möguleg.
Fyrir fjörutíu árum var haldinn í Reykjavík fundur sem sýndi öllum heiminum mátt samtalsins, og síðan hefur Ísland verið þekkt sem staður þar sem samtal getur breytt heiminum.
Í þeim anda óskum við einlæglega eftir góðum samskiptum við fulltrúa yfirvalda, svo að við getum saman fundið lausn á þessari nýju stöðu sem snertir okkur öll. Við óskum eftir opnu samtali og samskiptum við öll yfirvöld og alla stjórnmálaflokka til að finna leið til að verkefnið, sem er fullhannað, geti orðið að veruleika.
Við bjóðum öllum fulltrúum að kynna sér hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem liggja fyrir. Jafnframt bjóðum við borgarstjóra, Forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka hjartanlega að sækja með okkur guðsþjónustu sem haldin er alla sunnudaga kl. 10:00 að Öldugötu 44 í Vesturbænum.
Guð blessi okkur öll.
Timur Zolotuskiy,
sóknarprestur Rétttrúnaðarkirkjunnar
og starfsmaður býtibúrs á Landspítala Landakoti
