Tvær farþegaþotur, frá Air Canada og Delta Air Lines, skullu saman á jörðu niðri á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles á þriðjudag. Engin slys urðu á fólki en töluverðar skemmdir urðu á annarri vélinni.
Samkvæmt bandaríska miðlinum TMZ var Delta vél á leið eftir akbraut flugvallarins fyrir brottför þegar vinstri vængur hennar skall í stél Air Canada vélar sem verið var að draga að flugstöðinni.
Farþegi um borð í Delta vélinni lýsti því að mikið högg hefði fundist við áreksturinn áður en vélin stöðvaðist skyndilega. Enginn farþega um borð slasaðist.
Myndir af vettvangi sýna töluverðar skemmdir á hægri lárétta stélfleti Air Canada vélarinnar. Vélin hafði komið til Los Angeles frá Toronto og var tóm þegar atvikið varð.
Sean Davidson, talsmaður Air Canada, sagði vélina verða tekna úr umferð á meðan hún gengst undir skoðun og viðgerðir.
Bandaríska flugmálastjórnin, FAA, staðfesti að Delta flug 7 hefði skollið í stélflöt Air Canada vélarinnar um klukkan 10:30 að staðartíma. Air Canada vélin hafði verið í drætti en stöðvast skammt frá flugstöðinni þegar áreksturinn varð.
Slökkvilið Los Angeles var kallað á vettvang en ekki þurfti að grípa til slökkvistarfs. FAA hefur hafið rannsókn á tildrögum árekstursins.

