1
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

2
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

3
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

4
Innlent

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“

5
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

6
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

7
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

8
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

9
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

10
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Til baka

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfirlýsingum“

Félagsmenn félagsins Ísland Palestínu mótmæla við stjórnarráðið
Frá fyrri mótmælumGengið verður frá Hlemmi að Austurvelli
Mynd: Víkingur

Félagið Ísland-Palestína og BDS Ísland efna til kröfugöngu frá Hlemmi klukkan 13 í dag og samstöðufundar á Austurvelli í kjölfarið. Með aðgerðunum vilja samtökin þrýsta á íslensk stjórnvöld um að grípa til aðgerða vegna ástandsins í Palestínu.

Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu (Global Alliance for Palestine) hefur boðað til alþjóðlegs aðgerðadags í dag, 10. október. Samkvæmt fréttatilkynningu taka hundruð samtaka víða um heim þátt í samræmdum aðgerðum til stuðnings frjálsri Palestínu.

Meðal þátttakenda eru grasrótarhreyfingar, stúdenta- og verkalýðsfélög og samtök sem berjast fyrir réttindum Palestínumanna.

Í tilefni dagsins standa félagið Ísland-Palestína og BDS Ísland fyrir kröfugöngu frá Hlemmi klukkan 13. Að göngunni lokinni verður haldinn samstöðufundur á Austurvelli.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingkona og framkvæmdastjóri Courage International, verður fundarstjóri. Meðal ræðumanna verður Montaser Dwikat frá Nablus á Vesturbakkanum og Svava Sigbertsdóttir, einkaþjálfari og stofnandi Viking Method. Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður flytur ræðu og tónlist í lok fundarins.

Krefjast aðgerða íslenskra stjórnvalda

Í fréttatilkynningunni er lögð áhersla á að íslensk stjórnvöld hafi nýlega verið meðal tólf ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu.

Samtökin segja þó ekki hafa komið fram hvaða aðgerðir Ísland hyggist grípa til í framhaldinu.

„Þann 10. október krefjumst við þess að íslensk stjórnvöld láti verkin tala,“ segir í tilkynningunni.

Þar er einnig vísað til þess að stuðningur almennings við réttindi Palestínumanna hafi aukist verulega víða um heim frá því að þjóðarmorðið á Gaza hófst haustið 2023. Samtökin telja að aðgerðaleysi stjórnmálafólks og það sem þau kalla blekkingu um vopnahlé hafi stuðlað að því að hörmungarástand haldist á Gaza og Vesturbakkanum.

Vísa til mikillar eyðileggingar og mannfalls

Í tilkynningunni segja samtökin að að minnsta kosti 73.000 Palestínumenn hafi verið drepnir á síðustu þremur árum, þar af meira en 18.000 börn. Þau vísa jafnframt til þess að um 70 prósent mannvirkja og bygginga á Gaza hafi skemmst eða verið eyðilögð.

Þar segir jafnframt að raunverulegur fjöldi látinna kunni að vera mun hærri.

Samtökin vísa einnig til áframhaldandi árása á Gaza eftir að vopnahlé tók gildi og segja að árásir á sjúkrahús og heilbrigðisstarfsfólk haldi áfram, auk þess sem mannúðaraðstoð sé hindruð.

Þá lýsa þau áhyggjum af auknu ofbeldi og landráni ísraelskra „landræningja“ á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum. Í tilkynningunni er vestræn ríki jafnframt gagnrýnd fyrir aðgerðarleysi og stuðning við Ísrael.

Ísland-Palestína og BDS Ísland segja að markmiðið með aðgerðunum sé að kalla eftir raunverulegum viðbrögðum stjórnvalda fremur en yfirlýsingum.

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfirlýsingum,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir greindist með æxli í heila fyrir ári síðan
Hitler Mussolini kjörinn borgarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn borgarstjóri í Perú

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar
Heimur

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni
Innlent

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi
Heimur

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi

Farþegaþotur skullu saman
Myndband
Heimur

Farþegaþotur skullu saman

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfirlýsingum“
Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni
Innlent

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Loka auglýsingu