
Tveir einstaklingar gista í fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar þetta er ritað en alls voru 53 mál skráð í kerfum hennar frá klukkan 05:00 í morgun til 17:00. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Tveir einstaklingar voru í sitthvort skiptið handteknir og kærðir fyrir að kasta af sér vatni á húsnæði í miðbænum. Verða þeir kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Þá barst lögreglunni á Hverfisgötu tilkynning um líkamsárás þar sem þrír einstaklingar réðust á einn. Voru þrír grunaðir handteknir og vistaðir í fangaklefa en þolandi var fluttur á Bráðamóttökuna til skoðunar en ekki er vitað um alvarleika meiðslanna að svo stöddu. Tveir hinna handteknu eru undir 18 ára og er málið unnið í samvinnu við barnavernd og voru foreldrar upplýstir um málið.
Þá stöðvaði lögreglan af sömu stöð bifreið við almennt eftirlit en ökumaðurinn viðurkenndi að hafa stolið bifreiðinni stuttu áður. Var bæði ökumaður og farþegi bílsins handteknir grunaðir í málinu en ökumaðurinn var einnig grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna.
Á öðrum starfsstöðvum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bárust tilkynningar um fíkniefnaakstur, þjófnað á vinnusvæði og verslunum. Þá barst lögreglunni á Vínlandsleið tilkynning um svartölvaðan og ósjálfbjarga einstakling sitjandi á bekk fyrir utan skemmtistað. Er lögreglan kom á vettvang komu vinir þess drukkna að og ætluðu að koma honum heim með leigubíl.
